Móðir Columbine-morðingja: „Erfitt að lifa með því að einhver sem þú elskar og hefur alið upp hafi drepið fólk á svona hryllilegan hátt“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. febrúar 2016 11:06 Mynd úr öryggismyndavél af þeim Eric Harris og Dylan Klebold í Columbine-skólanum 20. apríl 1999. vísir/getty
Þann 20. apríl 1999 myrtu þeir Dylan Klebold og Eric Harris 13 manns í Columbine-gagnfræðiskólanum í Bandaríkjunum. Þeir særðu 21 og frömdu síðan sjálfsmorð. Skotárásin vakti mikinn óhug víða um heim og um hana hefur verið ítarlega fjallað, meðal annars í heimildarmynd Michael Moore, Bowling for Columbine. Nú hefur móðir Dylan, Sue Klebold, rofið þögnina, 17 árum eftir árásina, en hún hefur skrifað bók um það hvernig er að lifa með því að eiga son sem framdi hræðilegan glæp. Allur ágóði bókarinnar rennur til hjálparsamtaka sem vinna með geðfötluðum. Í viðtali við ABC News vegna útgáfu bókarinnar sagði Klebold að hún hefði tekið eftir því að eitthvað væri að angra son sinn en hún afskrifaði það sem „unglingaþunglyndi.“ Dylan var hins vegar að breytast mikið og Klebold segist ekki hafa áttað sig á því. „Hann bjó í allt öðrum heimi en ég. [...] Það er erfitt að lifa með því að einhver sem þú elskar og hefur alið upp hafi drepið fólk á svona hryllilegan hátt. Ég held að við foreldrar viljum trúa því að ef eitthvað er að börnunum þá myndum við vita það. En í tilfelli Dylan hafði ég ekki hugmynd um það og það er erfitt að lifa með því.“
Mest lesið Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Páll skipstjóri stígur fram og boðar áfrýjun Innlent Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjum Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Hnífjafnt til hægri og vinstri Innlent Golfklúbbarnir í óðaönn við að útbúa sérstaka félagsaðild Innlent Borgarstjóri kom af fjöllum Innlent Landlæknir braut á deildarstjóra réttargeðdeildar Innlent Fleiri fréttir Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum Sjá meira