Fór 2.500 kílómetra á pínulitlu mótorhjóli Jóhann Óli Eiðsson skrifar 4. október 2016 07:00 Sigríður Ýr Unnarsdóttir á hjóli sínu ásamt föruneyti. Alls ferðuðust þau 2.500 kílómetra á smáhjólunum en ferðin tók tólf daga. mynd/mike reid
Íslensk kona bíður nú staðfestingar á því að fá heimsmet skráð í Heimsmetabók Guinness. Heimsmetið er í óvenjulegri kantinum en það felst í því að ferðast rúmlega 2.500 kílómetra á smámótorhjóli.Ferðalangarnir á leiðarenda.mynd/mike reidFerðalag Sigríðar Ýrar Unnarsdóttur hófst í Ohio-ríki í byrjun septembermánaðar og lauk 17. september í Nýju-Mexíkó. Með í för voru þrír Bandaríkjamenn. Tveir þeirra tóku einnig þátt í að setja metið en sá síðasti ók fylgdarbíl hópsins. „Til að byrja með gekk þetta mjög vel þó undirbúningurinn hafi verið mikil pappírsvinna,“ segir Sigríður. Á níunda degi af tólf tók að halla örlítið undan fæti. Tveir samferðamenn hennar skaðbrenndust í mikilli sól og sá þriðji meiddi sig á kaktus. Sjálf hlaut Sigríður skurð á fæti þegar hún datt af hjóli sínu. „Það voru saumuð nokkur spor sem síðan rifnuðu upp þegar ég settist á hjólið á ný.“ Hrakfarirnar stöðvuðu þau ekki og komst hópurinn að lokum á leiðarenda. Þess er nú beðið að starfsmenn Guinness staðfesti það að fyrra met hafi verið slegið. Það met er 718 kílómetrar og var sett árið 2009. „Við skráðum för okkar með GPS-tækjum og myndavélum. Þá geymdum við allar kvittanir og allt sem okkur áskotnaðist á leiðinni. Í raun gerðum við allt í samræmi við það sem okkur var sagt í upphafi frá Guinness.“ Sigríður segir að það geti tekið allt að tólf vikur að fá staðfest að fyrra heimsmet hafi verið slegið en boðið er upp á flýtimeðferð sé þess óskað. „Við eigum von á niðurstöðu á allra næstu dögum. Ég trúi ekki öðru en að þetta fáist staðfest.“ Aðspurð um hvort hún hafi í hyggju að reyna við fleiri heimsmet segir hún að það sé aldrei að vita. „Ég er nú þegar með nokkur áhugaverð í huga en það verður að koma í ljós hvað verður úr því,“ segir Sigríður að lokum. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Innlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Fleiri fréttir Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Sjá meira