Innlent

Bílþjófurinn bar við minnisleysi og farinn á Hraunið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fjölskyldufaðir hafði skilið lyklana eftir í svissinum á meðan hann skaust inn á leikskóla að sækja eldri son sinn.
Fjölskyldufaðir hafði skilið lyklana eftir í svissinum á meðan hann skaust inn á leikskóla að sækja eldri son sinn. Kort/Loftmyndir.is
Maðurinn sem stal bíl með barni innanborðs fyrir utan leikskóla í Salahverfinu í Kópavogi á fjórða tímanum í gær var yfirheyrður í hádeginu í dag. Ekki hafði reynst unnt að yfirheyra hann fyrr sökum annarlegs ástands mannsins. 

Maðurinn ber við minnisleysi hvað varðar atburði gærdagsins að sögn Þóru Jónasdótur, stöðvarstjóra hjá lögreglunni í Kópavogi. Maðurinn átti eftir að afplána tæplega hálfan mánuð í fangelsi vegna eldri dóms og er kominn aftur á Litla-Hraun til að ljúka þeirri afplánun.

Rannsókn mun halda áfram og verður hann yfirheyrður betur í framhaldinu. Maðurinn var handtekinn á göngu eftir að hafa skilið bílinn eftir við verslun Krónunnar í Kórahverfinu. Leikskólakennari fann bílinn en hún sagðist hafa tilfinningu fyrir því að ógæfumaður hefði tekið bílinn.

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×