Copa América hefst í nótt | Allir leikirnir í beinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. júní 2016 21:15 Christian Pulisic og James Rodríguez. vísir/getty
Copa América, Suður-Ameríkukeppnin í fótbolta, hefst í nótt með opnunarleik Bandaríkjanna og Kólumbíu á Levi's vellinum í Santa Klara, Kaliforníu. Copa América er haldin í ár í tilefni af aldarafmæli keppninnar. Að þessu sinni fer keppnin fram í Bandaríkjunum en leikið verður á 10 völlum víðsvegar um landið. Sextán þjóðir taka þátt en ekki tólf eins og venjan er. Öll 10 liðin frá CONMEBOL, knattspyrnusambandi Suður-Ameríku, taka þátt auk sex liða frá CONCACAF, knattspyrnusambandi Norður- og Mið-Ameríku og Karabíahafsins. Allir 32 leikirnir í keppninni verða sýndir í beinni útsendingu á Sportstöðvunum og þá verður henni gerð skil í Sumarmessunni sem er á dagskrá alla leikdaga. Fjörið hefst sem áður sagði í nótt þegar Bandaríkin og Kólumbía mætast. Mikil pressa er á bandaríska liðinu og þá sérstaklega þjálfaranum, Jürgen Klinsmann. Þjóðverjinn segir að markmiðið sé að komast í undanúrslit. Til þess að það gerist þurfa Bandaríkjamenn líklega að vinna sinn riðil (sem samanstendur, auk Bandaríkjanna og Kólumbíu, af Kosta Ríka og Paragvæ) til að forðast Brasilíu í 8-liða úrslitunum. Klinsmann getur ekki nýtt krafta framherjans Jozys Altidore í keppninni en það verður spennandi að sjá hvernig hinn 17 ára gamli Christian Pulisic, leikmaður Borussia Dortmund, spjarar sig. Kólumbía teflir fram sterku liði sem ætlar að gera betur í Copa América í ár en í fyrra þar sem Kólumbíumenn duttu út í 8-liða úrslitum. Radamel Falcao er ekki í kólumbíska hópnum og Jackson Martínez er frá vegna meiðsla. Þá átti stærsta stjarna Kólumbíu, James Rodríguez, erfitt tímabil með Real Madrid þar sem hann sat mikið á bekknum.Leikur Bandaríkjanna og Kólumbíu hefst klukkan 01:30 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD. Útsendingin hefst 01:05 en sýnt verður frá opnunarhátíð keppninnar fyrir leikinn.
Fótbolti Mest lesið Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Víkingur - Borac 1-3 | Slæm byrjun í slag um Sambandsdeild og hundruð milljóna Fótbolti Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjólreiðalið Sport Fleiri fréttir Mikael kom inn af bekknum í slæmu tapi gegn Benfica „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Brann náði í frábær úrslit ytra Elías Rafn hélt hreinu og Midtjylland í kjörstöðu Stjarnan - Breiðablik | Úlfaþytur í Garðabæ Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Víkingur - Borac 1-3 | Slæm byrjun í slag um Sambandsdeild og hundruð milljóna Daníel biðst lausnar: „Malmö vill ekki sleppa mér“ Cancelo mættur til Barcelona en bíður eftir skráningu Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ „Versta ár ævi minnar“ Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjá meira