Liverpool-maðurinn fór á kostum í stórsigri Brasilíumanna | Sjáðu markaveisluna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júní 2016 07:30 Philippe Coutinho fagnar einu marka sinna. Vísir/Getty
Brasilíumenn eru komnir í gang í Ameríkukeppninni því þeir sýndu sínar allra bestu hliðar í nótt eftir að hafa gert markalaus jafntefli í fyrsta leiknum. Brasilía vann þá 7-1 sigur á Haíti en Ekvador og Perú gerðu 2-2 jafntefli í hinum leik riðilsins. Liverpool-maðurinn Philippe Coutinho skoraði þrennu í þessum 7-1 sigri Brasilíu á Haíti en Haítar eru þar með úr leik þrátt fyrir að ein umferð sé eftir af riðlakeppninni. Philippe Coutinho gaf tóninn strax í byrjun, Haítar voru heppnir að fá ekki rautt spjald fyrir brot á honum og þá átti hann líka gott skot á upphafsmínútunum. Philippe Coutinho kom Brasilíu í 2-0 með mörkum á 14. og 29. mínútu, það fyrra með glæsilegu skoti eftir að hafa komið inn af kantinum og það seinna af stuttu færi í tómt mark eftir undirbúning þeirra Dani Alves og Jonas. Renato Augusto kom Brasilíumönnum síðan í 3-0 fyrir hálfleik eftir sendingu frá Dani Alves en Renato Augusto átti síðan eftir að bæta við öðru marki rétt fyrir leikslok. Gabriel og Lucas Lima skoruðu næstu tvö mörk en það seinna koma eftir aðra stoðsendingu frá Dani Alves. Þá var staðan orðin 5-0 en Haíti minnkaði þá muninn áður en fyrrnefndir Renato Augusto (86. mínúta) og Philippe Coutinho (í uppbótartíma) bættu við síðustu tveimur mörkunum. Philippe Coutinho var aðeins búinn að skora eitt landsliðsmark fyrir leikinn í nótt en þetta var hans sextándi landsleikur. Það er líklegt að áhugi annarra liða aukist enn meira eftir þessa frammistöðu og stuðningsmenn Liverpool geta jafnvel farið að búa sig undir það að hann yfirgefi Anfield í sumar.Draumabyrjun Perúmanna dugði ekki nema til að fá eitt stig þegar Ekvador og Perú gerðu 2-2 jafntefli í hinum leik B-riðilsins. Perú, sem vann Haíti í fyrsta leik, var komið í 2-0 eftir aðeins þrettán mínútur með mörkum Christian Cueva og Edison Flores. Enner Valencia, leikmaður West Ham, minnkaði muninn á 39. mínútu og Miller Bolanos jafnaði metin í byrjun seinni hálfleiks.Brasilía og Perú eru í tveimur efstu sætunum með fjögur stig en Ekvador er í 3. sæti með 2 stig. Haíti er stigalaust á botnunum og er fyrsta liðið í keppninni sem ekki á lengur möguleika á því að komast í átta liða úrslitin. Brasilía og Perú mætast í lokaumferðinni en Ekvador ætti að eiga sigur vísan á móti Haíti.Önnur umferðin í C-riðlinum á þessu hundrað ára afmælismóti Ameríkukeppninnar fer fram í kvöld og verða leikirnir sýndir beint á Stöð 2 Sport. Þá mætast Úrúgvæ og Venesúela klukkan 23.30 og lið Mexíkó og Jamaíku klukkan 2.00. Mexíkó og Venesúela unnu leiki sína í fyrstu umferðinni.Mörkin úr leik Brasilíu og Haíti Mörkin úr leik Ekvador og Perú
Fótbolti Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjólreiðalið Sport Fleiri fréttir Víkingur - Borac | Slagur um Sambandsdeild og hundruð milljóna Daníel biðst lausnar: „Malmö vill ekki sleppa mér“ Cancelo mættur til Barcelona en bíður eftir skráningu Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ „Versta ár ævi minnar“ Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands? Myndi taka kúlu fyrir Infantino Sjá meira