Berahino hefur verið í miklu basli á leiktíðinni eftir að hann auglýsti á Twitter-síðu sinni að hann ætlaði í verkfall eftir að West Brom hafnaði alls fjórum tilboðum Tottenham í hann í sumar.
Sjá einnig: Berahino ósáttur: Spila aldrei aftur fyrir West Brom
Eftir það hefur honum gengið illa að vinna sér sæti í liði Steve McClaren en West Brom hafnaði einnig tilboðum frá Newcastle og Soke í Berahino í janúarglugganum.
Everyone waiting once again for the silly little spoilt boy to make same mistake so here you go.
— Saido Berahino (@SBerahino) February 1, 2016
Goodnight all and thanks for the support❤️
„Þegar menn eru á Twitter, Instagram og svoleiðis síðum þá getur fólk alls staðar að úr heiminum haft samband við hann. Það besta sem hann gæti gert væri að hætta öllu þessu og einbeita sér bara að fótbolta.“
„Hann veit að hann verður hér til loka tímabilsins. Það er bara svo einfalt. Maður hefði haldið að hann myndi bara demba sér í boltann af fullum krafti.“