Van Persie í guðatölu eftir gærkvöldið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2016 08:45 Robin van Persie. Vísir/Getty
Robin van Persie komst nánast í guðatölu hjá stuðningsmönnum Fenerbahce eftir frammistöðu sína í gærkvöldi þegar hann tryggði liðinu sigur á nágrönnunum og erkifjendunum. Van Persie skoraði þá bæði mörk Fenerbahce-liðsins í 2-0 sigri á Galatasaray í Kitalararasi derby-leiknum í Istanbul. Það gerist ekki á hverjum degi en Robin van Persie varð í gær fyrsti maðurinn í meira en þrjú ár sem nær að skora tvö mörk fyrir Fenerbahce á móti erkifjendum þeirra. Robin van Persie byrjaði tímabilið rólega og skoraði aðeins 1 mark í fyrstu átta umferðunum. Hann missti reyndar af tveimur leikjum vegna meiðsla. Van Persie skoraði í Evrópudeildarleik á móti sínum gömlu félögum (Manchetser United) og á sínum gamla heimavelli (Old Trafford) og það virðist hafa kveikt í kappanum. Robin van Persie hefur nú skorað fimm mörk og gefið eina stoðsendingu í síðustu þremur leikjum Fenerbahce og Fenerbahce liðið hefur unnið þá alla með markatölunni 10-1. Fenerbahce er í þriðja sæti tyrknesku deildarinnar en Galatasaray er bara í fimmta sætinu. Besiktas er í efsta sæti einu stigi á undan Basaksehir. Robin van Persie er annars sannkallaður maður derby-leikjanna. Hann hefur nefnilega skorað fyrir Feyenoord á móti Ajax í „De Klassieker“, hann hefur skorað fyrir Arsenal á móti Tottenham í Norður London slagnum og svo fyrir Manchester United á móti Manchester City í Manchester-slagnum.
Fótbolti Mest lesið Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Austurríkismenn hjálpuðu Alfreð Handbolti Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Handbolti Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Fótbolti „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Handbolti Alfreð mætti með sína menn klára í leik upp á líf eða dauða Handbolti Fleiri fréttir Mourinho kallar nýjustu sögusagnirnar sápuóperu Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Guardiola um Haaland: „Hann svaf ótrúlega vel“ Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Hörður Björgvin tekinn af velli í hálfleik í unnum leik Yfirmaður Jóns Dags í stríði við lögreglu Guéhi genginn til liðs við City Börsungar brjálaðir út í dómara sem tók þrjú mörk af þeim „Þetta eru svakaleg kaup“ Slóst við boltastráka sem vildu stela handklæðinu Tískuspaðinn Þorleifur fer aftur út Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Rauk út eftir lætin í blaðamönnum Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Karólína skoraði í sigri á Juventus Albert kom að marki í þriðja leiknum í röð Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Genoa ekki tapað í fjórum leikjum í röð Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Stefán Teitur sætti sig ekki við bekkjarsetu: „Það besta í stöðunni“ Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Salah klúðraði vítaspyrnu er Nígería tók þriðja sætið Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Sjá meira