Innlent

Loka Hvalfjarðargöngum um næstu helgi vegna malbikunar

Atli Ísleifsson skrifar
Hvalfjarðargöng.
Hvalfjarðargöng. Vísir/Pjetur
Hvalfjarðargöng verða lokuð um næstu helgi vegna malbikunar.

Göngunum verður lokað frá klukkan 20 að kvöldi föstudags 15. maí til klukkan 6 að morgni mánudagsins 18. maí.

Í tilkynningu frá Speli segir að akreinin til suðurs hafi verið malbikuð í október. Til hafi staðið að taka seinni áfanga verksins í apríl en það hafi frestast vegna óhagstæðra veðurskilyrða helgi eftir helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×