Sama samkomulag ekki lagt fram aftur Óli Kristján Ármannsson skrifar 3. mars 2015 07:00 Frá samstöðufundi framhaldsskólakennara í mars í fyrra. Kjarasamningur framhaldsskólakennara er nú laus á ný eftir að nýju vinnumati var hafnað. Fréttablaðið/GVA
Samninganefnd Félags framhaldsskólakennara kemur saman á miðvikudag til að ræða þá stöðu sem upp er komin eftir að vinnumat framhaldsskólakennara var fellt í atkvæðagreiðslu síðastliðinn föstudag. Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, gerir ráð fyrir að í vikunni, eftir fund samninganefndarinnar, verði líka fundað með samninganefnd ríkisins. Nýtt vinnumat mætti einna mestri andstöðu hjá kennurum iðngreina, sem töldu það ógagnsætt og fela í sér aukna vinnu. Um leið og vinnumatið var fellt féllu niður launahækkanir sem það átti að hafa í för með sér fyrir kennara, 9,5 prósent strax og tvö prósent til viðbótar um næstu áramót, alls 11,69 prósenta launahækkun.„Þetta þýðir bara að kjarasamningurinn er laus og að nú þurfum við að endurmeta stöðuna,“ segir Guðríður. Félagið þurfi að greina hvað það hafi verið sem félagsmönnum hugnaðist ekki við nýja vinnumatið. „Ýmsar ástæður geta verið að baki því að fólk sagði nei, og sjálfsagt mismunandi út frá einstaklingum hvað hverjum fannst.“ Hvort stefni í harða deilu við ríkið segist Guðríður ekki þora að spá um. „Fyrir lá samkomulag um vinnumat sem félagsmenn felldu. Þeim bara hugnast þetta ekki. Þá leggjum við eðlilega ekki fyrir sama samkomulagið heldur þurfa að eiga sér stað einhverjar breytingar.“ Þá þurfi að velta fyrir sér hvort stéttin sé yfirleitt tilbúin að fara í breytingar og að hversu miklu marki þurfi að fara í breytingar til að laga kjarasamninga félagsins að nýjum lögum um lengingu skólaársins í 180 daga. Kröfugerð félagsins liggi ekki fyrir. „Við þurfum að setja okkur samningsmarkmið og til þess að gera það þurfum við náttúrlega að vera með góða yfirsýn yfir stöðuna eins og hún er núna og heyra í okkar félagsmönnum,“ segir Guðríður og bætir við að haldinn verði fulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara 19. þessa mánaðar og þá verði tilefni til að fara yfir stöðuna. „En það mun ekkert draga til tíðinda í þessum mánuði. Við þurfum bara að skoða stöðuna, vanda okkur og taka yfirvegaðar ákvarðanir um næstu skref.“Grunnskólakennarar samþykktu matiðVinnumat grunnskólakennara var samþykkt síðastliðinn föstudag með 57,8 prósentum greiddra atkvæða. 1.701 sagði já, en nei sögðu 1.160 eða 39,4 prósent. Auðir seðlar voru 81, eða 2,8 prósent. „Vegna þeirra breytinga á vinnuumhverfi kennara, sem kjarasamningurinn felur í sér, hækka laun kennara um 9,5 prósent þann 1. maí næstkomandi og um 2,0 prósent þann 1. janúar 2016,“ segir á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga. Að þeim hækkunum loknum hafa laun grunnskólakennara því hækkað um 11,69 prósent.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira