Herflugvél hrapaði í Indónesíu Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 1. júlí 2015 07:00 113 manns voru í vélinni og eru þeir allir taldir af. nordicphotos/afp
Óttast er að fleiri en hundrað manns hafi látið lífið í Indónesíu eftir að herflugvél hrapaði í íbúðahverfi í borginni Medan. Sextíu og sex lík hafa nú fundist. Frá þessu greinir BBC. Flugvélin sem var af gerðinni Herkúles C-130 skall á tveimur íbúðabyggingum og hóteli áður en hún sprakk í loft upp. Talsmenn flughersins segja að 113 manns hafi verið um borð í vélinni en talið er að enginn hafi lifað af. Þá er fjöldi fólks fastur inni í byggingunum sem flugvélin skall á. Mikill eldur kom upp þegar vélin hrapaði á byggingarnar og börðust viðbragðsaðilar við eldinn í þó nokkurn tíma, en svartur þykkur reykur gerði þeim erfitt fyrir. Þá skemmdist fjöldi húsa í nágrenninu. Vélin, sem talsmenn hersins segja að hafi verið í góðu standi, hringsólaði yfir borginni í nokkurn tíma áður en hún hrapaði. Flugmaður vélarinnar hafði óskað eftir að fá að lenda henni á nærliggjandi flugvelli vegna vélarbilunar. Ekki hefur enn fengist staðfest hvað olli slysinu. Fjöldi fólks safnaðist saman til að fylgjast með björgunaraðgerðum en einungis stél vélarinnar er eftir, aðrir hlutar hennar sprungu í loft upp. Þetta er í annað sinn sem flugvél hrapar í Medan en árið 2005 hrapaði Boeing á íbúðabyggð í borginni með þeim afleiðingum að um 200 manns létu lífið.
Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Fleiri fréttir Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Sjá meira