Fótbolti

Drogba beitti bolabrögðum gegn liði Kristins

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Didier Drogba.
Didier Drogba. vísir/getty
Didier Drogba hefur lengi verið refur í boltanum og hann beitti nýjum aðferðum gegn Columbus Crew í nótt.

Drogba spilar nú með liði Montreal Impact í MLS-deildinni en liðið mætti liði Kristins Steindórssonar, Columbus Crew, í nótt í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar.

Montreal vann leikinn 2-1 og fer því með forskot í seinni leikinn. Kristinn var ekki í leikmannahópi Crew í nótt.

Sjá má hér að neðan er Drogba heldur markverði Crew og lætur hann síðan heyra það. Afar sérstök uppákoma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×