Fótbolti

Tevez meistari með sínu gamla félagi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tevez fagnar hér titlinum með félögum sínum.
Tevez fagnar hér titlinum með félögum sínum. vísir/getty
Draumur Carlos Tevez að verða meistari á nýjan leik með Boca Juniors varð að veruleika um helgina.

Þá tryggði Boca sér sinn 31. titil með því að leggja lið Tigre, 1-0. Tevez er fyrirliði liðsins og helsta hetja.

Hann varð meistari með Boca árið 2003 en síðan hélt hann af stað út í heim. Fyrst til Brasilíu, þá Englands og loks Ítalíu áður en hann snéri aftur heim til Argentínu. Þetta er áttundi meistaratitillinn sem Tevez vinnur á ferlinum.

Deildinni er ekki lokið en ekkert lið getur náð Boca úr því sem komið er og leikmenn liðsins munu eflaust fagna mikið næstu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×