Lífið

Vöxuð í sjálfsmyndatöku

Kim kann allar reglurnar þegar kemur að vel heppnuðum sjálfsmyndatökum.
Kim kann allar reglurnar þegar kemur að vel heppnuðum sjálfsmyndatökum.
Madame Tussauds-vaxmyndasafnið í London er nú í óðaönn að undirbúa næsta vaxmyndastykkið og er engin önnur en sjálf Kim Kardashian í smíðum.

Mun glanspían mótuð þannig að hún sé í miðri sjálfsmyndatöku, sem hin raunverulega Kim kann manna best, en hún gaf einmitt út bók, Selfish, stútfulla af sjálfsmyndum ekki alls fyrir löngu. Bókin hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur. 

Segja aðstandendur safnsins ekki annað hafa komið til greina, enda séu „sjálfurnar“ hennar einkennismerki og geta gestir safnsins látið smella mynd af sér með sjálfsmyndadrottningunni.

Þó verða reglur hennar hátignar í hávegum hafðar, en í umræddri bók kemur skýrt fram að ekki skuli taka fleiri en þrjár „sjálfur“ á hverjum stað.


Tengdar fréttir

Langar í strák

Stjörnuhjónin Kim Kardashian West og Kanye West tilkynntu í síðustu viku að þau ættu von á sínu öðru barni en fyrir eiga þau hina rúmlega tveggja ára gömlu North West.

Afmæli Kanyes var ótrúlegt

Kim Kardashian gaf eiginmanni sínum, Kanye West, heldur betur gjöf sem kemur til með að gleymast seint.

Kim og Kanye eiga von á sínu öðru barni

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian og rapparinn Kanye West eiga von á öðru barni en þetta kemur fram í nýjasta þætti af Keeping up with the Kardashians.

Umtalaðar forsíður

Caitlyn Jenner er ekki sú fyrsta til að eiga umtalaða forsíðumynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.