Lífið

Afmæli Kanyes var ótrúlegt

Kanye West og Kim Kardashian skemmtu sér vel í afmælinu.
Kanye West og Kim Kardashian skemmtu sér vel í afmælinu. Mynd/Instagram
Kim Kardashian gaf eiginmanni sínum, Kanye West, heldur betur gjöf sem kemur til með að gleymast seint þegar hún leigði Staple Center, sem er aðalíþróttahöllin í Los Angeles, undir 38 ára afmælisveislu hans. Höllin er jafnframt heimavöllur NBA-liðanna Clippers og Lakers en West er mikill körfuboltaunnandi.

Hjónin voru með höllina leigða í einn dag og á vef TMZ kemur fram að Kim hafi borgað yfir fjórtán milljónir króna fyrir leiguna.

Fjölskylda hjónanna og vinir voru í góðum gír en gestalistinn í gleðskapnum var stjörnum prýddur. NBA-stjörnurnar Russell Westbrook, John Wall og James Harden mættu í afmæliskörfuboltann. Þá voru stjörnur á borð við Justin Bieber, Tyga og Pusha T einnig á svæðinu. Bandaríski söngvarinn John Legend söng þjóðsönginn við góðar undirtektir.

Alvöru NBA-dómarar dæmdu afmælisleikinn og þá tóku klappstýrur Los Angeles Lakers nokkur dansspor til að létta mönnum lundina enn frekar og styðja við bakið á West.

Körfuboltahetjurnar Kobe Bryant, Magic Johnson, Carmelo Anthony, Shaquille O'Neal og Scottie Pippen komu fram í myndböndum í afmælinu sem birtust á skjánum í Höllinni.

WEST VS EAST

A photo posted by Kim Kardashian West (@kimkardashian) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×