Erlent

Fimm hákarlar gæddu sér á hræi búrhvals

Samúel Karl Ólason skrifar
Kafarinn Brett Vercoe birti nýverið myndband sem hann tók af fimm hákörlum gæða sér á hræi búrhvals við strendur Ástralíu. Brett og eiginkona hans fylgdust með hákörlunum í um þrjá tíma og tóku bæði myndir og myndbönd.

Á Mashable segir að allir hákarlarnir séu minnst fjögurra metra langir og um þrjá hvítháfa sé að ræða og tvo tígrisháfa.

Útkoma þeirra hjóna er magnað myndband þar sem sjá má hákarlana bíta í hræ hvalsins og hrista sig þar til þeir losna.

Þegar myndbandið er búið má sjá ljósmyndir og eru sumar þeirra teknar í kafi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×