Sextán ára sonur Hagi fékk fyrirliðabandið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. ágúst 2015 19:00 Gheorghe Hagi með fyrirliðabandið í leik með rúmenska landsliðinu. Vísir/Getty
Gheorghe Hagi er einn besti knattspyrnumaður Rúmena frá upphafi og nú er sonur hans farinn að vinna sig upp metorðastigann hjá félagi sínu í Rúmeníu. Ianis Hagi, sonur Gheorghe Hagi, er ekki aðeins kominn inn í meistaraflokkslið Viitorul Constanta þrátt fyrir að vera bara sextán ára gamall, því hann er orðin einn af leiðtogunum í einu af bestu liðum landsins. Ianis Hagi fékk nefnilega fyrirliðabandið um arminn í 2-1 sigri á Universitatea Craiova í gærkvöldi en liðið er með tíu stig eftir fyrstu sex umferðirnar. „Það er sérstakt að fá að bera fyrirliðabandið svona ungur en ég er vanur því," sagði Ianis Hagi við rúmenska blaðamenn en hann er fyrirliði sautján ára landsliðs Rúmeníu. Ianis Hagi var reyndar ekki fyrirliði frá upphafi leiksins en hann fékk fyrirliðabandið þegar Razvan Marin var tekinn af velli fjórtán mínútum eftir hálfleik. Ianis Hagi lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með Viitorul Constanta í desember í fyrra. Faðir hans, Gheorghe Hagi, var kallaður Maradona Karpatafjallanna, er allt í öllu hjá Viitorul Constanta. Hann stofnaði félagið, er eigandi þess og stýrir liðinu sem er þekkt fyrir gott yngri flokka starf. Viitorul Constanta hefur enn ekki tapað á þessu tímabili og í öðru sæti í deildinni með tíu stig. Gheorghe Hagi stofnaði félagið 2009. Gheorghe Hagi, sem varð fimmtugur á þessu ári, skoraði 35 mörk í 124 landleikjum fyrir Rúmeníu frá 1983 til 2000. Þrjú af þessum mörkum skoraði hann á móti Íslandi þar af eitt á Laugardalsvellinum. Hagi spilaði fyrir bæði Real Madrid (1990-1992) og Barcelona (1994-1996).Vísir/Getty
Fótbolti Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Fór snemma út af í jafntefli við nýliðana Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Van Bommel tekur við Belgíu Entist skammt í þjálfarastólnum Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Töluðu við Ancelotti áður en þeir reyndu við Guardiola Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Chelsea að hreppa Lacroix Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Hættir með landsliðinu María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Sjá meira