Stjörnukonur með níu Evrópumörk á þremur dögum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. ágúst 2015 17:52 Harpa Þorsteinsdóttir skoraði tvö mörk í dag. Vísir/Andri Marinó
Stjarnan vann í dag annan leik sinn í röð í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í fótbolta og tryggði sér hreinan úrslitaleik á móti Apollon frá Kýpur í lokaumferðinni. Stjarnan fylgdi á eftir fimm marka sigri á maltneska liðinu Hibernians fyrir tveimur dögum með því að vinna 4-0 sigur á liði KÍ Klaksvík frá Færeyjum. Stjörnukonur eru þar með fullt hús og markatöluna 9-0 eftir fyrstu tvo leikina en aðeins sigurvegari riðilsins kemst í 32 liða úrslit keppninnar. Harpa Þorsteinsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna og þær Lára Kristín Pedersen og Poliana skoruðu sitthvort markið. Hin brasilíska Poliana hefur þar með skorað í þremur fyrstu leikjum sínum með Stjörnunni. Poliana, Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, Björk Gunnarsdóttir og Francielle áttu síðan allar stoðsendingar í leiknum. Stjörnukonur voru í stórsókn allan leikinn en fyrsta markið kom þó ekki fyrr en á 50. mínútu og það skoraði Lára Kristín Pedersen. Harpa Þorsteinsdóttir og Poliana skoruðu með mínútu millibili eftir rúmlega klukkutímaleik og Harpa bætti síðan við öðru marki sínu níu mínútum fyrir leikslok. Leikur Stjörnunnar og Apollon fer fram á sunnudaginn en riðillinn fer einmitt fram á Kýpur. Stjörnukonur þurfa þar að glíma bæði við heimastúlkur og mikinn hita sem er í þessum hluta Evrópu í dag.
Fótbolti Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti „Slakiði á“ Fótbolti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Fótbolti Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM Fótbolti Fleiri fréttir Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Glódís Perla: Líður eins og þær séu 14 á móti 11 „Þær eru drullugóðar í fótbolta“ Sjá meira