Skátarnir hleypa samkynhneigðum inn Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 27. júlí 2015 07:00 Fullorðnir samkynhneigðir einstaklingar vonast til að fá að stjórna innan bandarísku skátahreyfingarinnar. Nordicphotos/getty
Búist er við því í dag að bandaríska skátahreyfingin, Boy Scouts of America, leggi niður reglu þess efnis að samkynhneigðir fullorðnir einstaklingar megi ekki verða leiðtogar og foringjar innan hreyfingarinnar. The New York Times greinir frá þessu. Breytingin mun einnig ná til allra annarra starfsmanna hreyfingarinnar. Hart hefur verið deilt um málið í lengri tíma. Skátahreyfingin hefur verið lögsótt vegna mismununar í garð samkynhneigðra en þrýstingur hefur einnig komið frá skátunum sjálfum, stuðningsaðilum og almenningi. Þátttaka í skátahreyfingunni hefur minnkað töluvert og eru nú um 70 prósent skátadeilda studd af kirkjum eða trúarhópum. Kirkjurnar eru margar hverjar mjög andvígar því að fullorðnir samkynhneigðir einstaklingar komist til valda eða fái yfir höfuð að starfa innan skátahreyfingarinnar. Þær hafa því mikla aðkomu að því að velja leiðtoga eða foringja sem aðhyllast trúarleg gildi þeirra. Samkynhneigðir unglingar fengu fyrst að taka þátt í starfi skátahreyfingarinnar árið 2013 en fullorðnir hafa ekki notið sama réttar. Robert M. Gates, forseti bandarísku skátahreyfingarinnar og fyrrverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, varaði við því í maí að hreyfingin gæti ekki haldið þessu banni áfram.
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Innlent Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Innlent Fleiri fréttir Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Sjá meira