Innlent

Sjá pólitískan halla á vefnum

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Gunnar Axel Axelsson
Gunnar Axel Axelsson
„Í mínum huga hefur vefurinn verið upplýsingavefur fyrir bæjarbúa en ekki miðill fyrir meiri- eða minnihluta bæjarstjórnar,“ segir Gunnar Axel Axelsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.

Minnihluti bæjarráðs Hafnarfjarðar telur að vefsíða bæjarins sé nýtt sem einhliða málgagn meirihlutans. Þetta kemur fram í fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstri grænna í bæjarráði Hafnarfjarðar fyrir helgi. Meirihlutinn segir engar breytingar hafa orðið á reglum um notkun vefsíðu bæjarins og að nýr vefur sé í bígerð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×