Innlent

Samfylkingin vill fá aðgerðir

fanney birna jónsdóttir skrifar
Samfylkingin segir brýnt að draga til baka aðgerðir gegn launafólki sem samþykktar voru í fjárlögum í andstöðu við verkalýðshreyfinguna.
Samfylkingin segir brýnt að draga til baka aðgerðir gegn launafólki sem samþykktar voru í fjárlögum í andstöðu við verkalýðshreyfinguna. Fréttablaðið/Daníel
Þingflokkur Samfylkingarinnar samþykkti í gær ályktun þar sem tekið er heils hugar undir með launafólki og samtökum þeirra í yfirstandandi kjarabaráttu.

„Þrátt fyrir ólíkar kröfur einstakra samtaka launafólks er barátta gegn auknum ójöfnuði í samfélaginu það sem sameinar kröfugerð allra. Best settu fyrirtækin hagnast sem aldrei fyrr og arðgreiðslur og stjórnarlaun hækka í engu samræmi við þau tilboð sem atvinnurekendur setja fram í kjaraviðræðunum. Hækkun lágmarkslauna í 300 þúsund krónur á þremur árum er hógvær krafa í því samhengi. Skipta á hagnaði af rekstri með eðlilegum hætti milli launafólks og eigenda,“ segir í ályktuninni.

Samfylkingin segir samtök launafólks ekkert traust bera til ríkisstjórnar sem hleypt hafi samstarfinu í algjört uppnám.

„Það gefur ekki góð fyrirheit um farsæla niðurstöðu kjarasamninga að fjármálaráðherra sem viðsemjandi geri lítið úr baráttu launafólks, snúi út úr kröfum háskólamanna og hóti skerðingu á verkfallsrétti.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×