Upplýsingum um flugfarþega safnað guðsteinn bjarnason skrifar 29. janúar 2015 08:00 Ítarlegum upplýsingum verður safnað í miðlægan gagnagrunn, nái tillagan fram að ganga. fréttablaðið/AP
Áform framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að safna og geyma í fimm ár ítarlegar upplýsingar um flugfarþega hafa sætt gagnrýni fyrir að taka lítið tillit til sjónarmiða persónuverndar. Hugmyndin er sú að um hvern einasta flugfarþega verði skráðar upplýsingar í 42 liðum. Þar á meðal er nafn, heimilisfang, vegabréfsnúmer, greiðslumáti, upplýsingar um farangur og óskir um fæðuval í flugi, svo fátt eitt sé nefnt. Þessar upplýsingar verði dulkóðaðar eftir sjö daga, en síðan geymdar í miðlægum gagnagrunni í fimm ár til þess að lögregla og önnur yfirvöld öryggismála geti fengið aðgang að þeim. Breska dagblaðið The Guardian skýrði frá þessum áformum í gærmorgun, en framkvæmdastjórnin hugðist svo kynna þau innan tíðar. „Það er augljóst brot á grundvallarréttindum að safna á einu bretti upplýsingum um alla farþega,“ hefur The Guardian eftir Jan Philipp Albrecht, sem er varaformaður borgararéttindanefndar Evrópuþingsins. Hann segir þessa stórtæku upplýsingasöfnun hvort eð er ekki hafa mikið gildi, heldur sé hún fyrst og fremst sýndaraðgerð á kostnað réttinda almennings auk þess sem hún dragi í reynd úr öryggi fólks. „Í staðinn fyrir heildarsöfnun farþegaskráninga, þá þurfum við að fylgjast með einstaklingum, sem grunur fellur á, og flugferðum, sem áhættusamar geta talist,“ segir hann. Upphaflega koma þessar hugmyndir frá innanríkisráðherrum Evrópusambandsins, en þær mættu töluverðri andstöðu á Evrópuþinginu. Fyrir tveimur árum voru þessi áform því lögð á hilluna, en tillögur framkvæmdastjórnarinnar eru sagðar málamiðlun sem hægt væri að ná samstöðu um. The Guardian segir að þessi málamiðlun hafi náðst þegar innanríkisráðherrar Evrópusambandsins hittust í París, daginn sem fjölmenn samstöðuganga var haldin í tilefni af morðunum á ritstjórn skoptímaritsins Charlie Hebdo og víðar í París. Þar hafi breski innanríkisráðherrann Theresa May, en hún hefur talað einna ákafast fyrir þessum áformum, fallist á að nú sé helsta forgangsatriðið að afla meiri stuðnings við þau innan Evrópuþingsins.
Mest lesið Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis Innlent Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Bein útsending: Daði Már gangsetti vindmyllur Innlent „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Innlent Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Innlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Sjá meira