Fótbolti

Þekktur ítalskur íþróttablaðamaður brjálaður út í Svía

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ítalir unnu Englendinga en eru samt úr leik.
Ítalir unnu Englendinga en eru samt úr leik. Vísir/Getty
Svíar komust í undanúrslit í gær í úrslitakeppni Evrópumóts 21 árs landsliða eftir jafntefli á móti Portúgölum í lokaleiknum. Úrslitin nægðu báðum þjóðum til þess að komast áfram og einn ítalskur blaðamaður Gazzetta dello Sport var allt annað en sáttur við Svía.

Trancedi Palmeri, blaðamaður Gazzetta dello Sport, heldur því fram að liðin hafi hagrætt úrslitum leiksins og að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem Svíar geri slíkt.

„Svíar hafa nú hagrætt úrslitum á stórmóti alveg eins og þeir gerðu 2004. Litla Svíþjóð slær nú aftur út Ítalíu á slíkan hátt. Árið 2004 kláruðu Ítalir sitt verkefni á móti Búlgaríu en Danir og Svíar fóru aftur á móti saman í sturtu eftir skandínavískt samkomulag. Nú er samkomulagið sænskt-portúgalskt. Einni spurningu er ósvarað. Getur UEFA ekki athugað þetta?, skrifaði í grein sína í Gazzetta dello Sport í morgun.

Trancedi Palmeri er þekktur blaðamaður sem vinnur fyrir bæði Gazzetta dello Sport og CNN og hann var líka að tjá sig um málið á twitter-síðu sinni.

„Ekki segja við mig að við hagræðum fullt af úrslitum hér á Ítalíu. Við gerum í það minnsta eitthvað í því að uppræta slíkt. Er sama hægt að segja um Svíþjóð," skrifaði Palmeri.

Palmeri gekk líklega aðeins of langt með einni færslu sinni sem má sjá hér fyrir neðan þegar hann er farinn að tala um lauslæti sænskra kvenna á ferðalögum sínum á Ítalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×