Kristinn: Mikilvægast að fá að spila Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. desember 2015 16:00
Kristinn Steindórsson samdi í dag við sænska úrvalsdeildarfélagið Hammarby til næstu þriggja ára og hann segist sáttur við ná niðurstöðu. Kristinn, sem er uppalinn Bliki, var á mála hjá Halmstad í Svíþjóð áður en hann gekk í raðir Columbus Crew fyrir ári síðan.Sjá einnig: Kristinn samdi við Sundsvall til þriggja ára „Það er fínt að þetta sé klappað og klárt,“ sagði Kristinn í samtali við Vísi í dag. „Þetta hefur staðið til í nokkurn tíma en það er gott að ég get byrjað að einbeita mér að koma mér af stað hjá nýju liði.“ Hann segist ánægður með árið sitt í Bandaríkjunum að langflestu leyti. „Það eina sem ég var ekki sáttur við var hversu lítið ég fékk að spila. En allt hjá félaginu var mjög flott og ég lærði mikið af því að vera þarna,“ segir hann. „Mér leið vel í Bandaríkjunum og liðið átti flott tímabil. En það sem mestu máli skiptir er að spila og því er ég ánægður með að vera kominn með nýtt lið.“ Hann segir að það hafi verið öðruvísi upplifun að spila í bandarísku MLS-deildinni. „Það er ekkert grín að ferðast í gegnum mörg tímabelti á milli leikja og spila í mismunandi loftslagi og annað slíkt. Menningin er líka önnur í kringum deildina. Deildin sjálf ræður miklu og leikmenn eru oft að berjast fyrir ákveðnum réttindum sem menn ganga að vísu í Evrópu.“ Kristinn segist ekki þurfa að sanna sig í Svíþjóð heldur vilji hann minna á sig. „Sérstaklega eftir ár þar sem ég hef lítið fengið að spila. En fyrst og fremst ætla ég að fara út til að standa mig vel, skora mörk og leggja upp og hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum.“ Sundsvall endaði í tólfta sæti sænsku deildarinnar í ár en Rúnar Már Sigurjónsson er á mála hjá liðinu. Jón Guðni Fjóluson hefur spilað með Sundsvall undanfarin ár en samdi fyrir skömmu við Norrköping.
Fótbolti Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Körfubolti „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Fótbolti Fleiri fréttir Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Messi lögsóttur fyrir að spila ekki vináttuleik Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Leikmenn Arsenal völdu Rice sem fyrirliða Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Átti Camavinga skilið spjald? „Ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu“ Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real „Ég get ekki breytt þessu“ Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Þú ert farinn að verða þybbinn“ „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni Sjá meira