Vilja skera á stuðning Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 30. júlí 2015 07:00 Þetta fólk krefst þess að ríkið hætti að styðja kvenheilbrigðisstofnunina Planned Parenthood. nordicphotos/afp
Öldungadeild Bandaríkjaþings mun í ágúst kjósa um hvort ríkisstjórnin eigi að hætta að styrkja einkareknu heilbrigðisstofnunina Planned Parenthood um 500 milljónir Bandaríkjadala á ári. Frumvarpið kemur frá fjórum repúblikönum. Planned Parenthood veitir konum ýmiss konar heilbrigðisþjónustu á borð við leit að brjóstakrabbameini, getnaðarvarnir og fóstureyðingar. Stofnunin framkvæmir fleiri fóstureyðingar í Bandaríkjunum en nokkur önnur. Talið er að ef ríkið hætti að styrkja hana fari hún á hausinn. Frumvarpið kemur í kjölfar leka þriggja myndskeiða þar sem háttsettir stjórnendur Planned Parenthood ræða ólöglega sölu fósturvefs. Flutningsmenn frumvarpsins segja að ríkisstjórnin geti ekki stutt slíka starfsemi. Stofnunin hefur þó lýst því yfir að ekkert misjafnt hafi átt sér stað. Repúblikanar hafa nauman meirihluta í öldungadeildinni, 54 þingmenn af 100, og eru flestir þeirra andvígir fóstureyðingum. 60 þingmenn þarf til að ríkið hætti stuðningnum. Nokkrir demókratar eru andvígir fóstureyðingum en spurning er hvort það dugi til. „Gangi ykkur vel. Við erum að fást við heilsu bandarískra kvenna en þau eru að fást við geðbilun,“ sagði Harry Reid, leiðtogi demókrata á þinginu.
Mest lesið Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Innlent Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Innlent Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Innlent Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Innlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Erlent „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Innlent Fleiri fréttir Sá Trump aldrei hegða sér ósæmilega og kannast ekki við kúnnalistann Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Sjá meira