Innlent

Vélsleðaslys við Hlöðufell

Samúel Karl Ólason skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út.
Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út. Vísir/Vilhelm
Vélsleðamaður ók fram af hengju við Hlöðufell nú síðdegis og slasaðist. Ferðafélagar hans hafa flutt hann í skála og bíða aðstoðar. Skyggni á svæðinu er lítið og skafrenningur er við Hlöðufell.

Björgunarsveitir úr Árnessýslu og af höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út og eru á leið á slysstað, samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörgu. Með í för eru sjúkraflutningamenn frá Selfossi. Þungt færi er á slysstað og nánast eingöngu fært snjóbílum og vélsleðum. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur einnig verið kölluð út.

Uppfært 17.40: Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg er vélsleðamaðurinn kominn um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar og á leið til Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×