Norður Kórea þróar nýjan gervihnött Samúel Karl Ólason skrifar 4. júní 2015 16:40 Unha-3 eldflaugin sem notuð var til að skjóta gervihnetti á loft árið 2012. Vísir/AFP
Geimstofnun Norður Kóreu segir að unnið sé að nýrri tegund gervihnattar. Þeir segjast hafa rétt til að framkvæma eldflaugatilraunir að vild, þrátt fyrir mótmæli Bandaríkjanna og annarra sem segja tilraunirnar einungis þjóna hernaðarlegum tilgangi. Fyrsta og eina gervihnetti landsins var skotið á loft árið 2012. Ekki er þó ljóst hvort hann virki sem skildi. Gervihnöttinn á að nota til að taka myndir og myndbönd af jörðinni. Paek Chang Ho, varaframkvæmdastjóri rannsóknar- og þróunardeildar geimstofnunarinnar ræddi við AP fréttaveituna. Hann segir að áður en gervihnettinum verði skotið á loft muni þeir tilkynna alþjóðastofnunum og öðrum þjóðum. Ekki er vitað hvenær gervihnötturinn verður tilbúinn né hvenær á að skjóta honum á loft. Sérfræðingar sem fréttaveitan ræddi við giska á að gervihnettinum verði skotið á loft í október. Þá verður þess minnst að Verkamannaflokkur Kóreu hefur verið við stjórnvölin í 70 ár.Nýjar vopnatilraunir valda áhyggjum Stjórnvöld í Norður Kóreu tilkynntu nýverið að þau hefðu þróað og prófað nýja gerð eldflauga sem þeir gætu skotið úr kafbáti. Þá tóku þeir fram að þeir gætu nú búið til kjarnorkusprengjur sem hægt væri að koma fyrir í langdrægnum eldflaugum. Sérfræðingar og greinendur draga sannleiksgildi beggja tilkynninganna í efa. Hins vegar þykir ljóst að Norður Kórea búi yfir smáu en stækkandi kjarnorkuvopnabúri og hafi endurbætt eldflaugar sínar frá því að viðræður um kjarnorkustefnu ríkisins hættu 2009. Menn eru þó ekki sammála um hvort að meginmarkmið tilrauna Norður Kóreu sé að byggja upp þjóðarstolt eða í raun byggja upp getu til að skjóta kjarnorkuvopnum að vesturströnd Bandaríkjanna. Eftir gervihnattaskotið 2012 voru settar upp eftirlíkingar af eldflauginni víða um landið. Samkvæmt AP klifra börn á slíkum eftirlíkingum í leikgörðum, þá er einnig hægt að finna þær í skemmtigörðum og víða annarsstaðar.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Fleiri fréttir Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Sjá meira