Hnífjafnt í ísraelsku þingkosningunum Bjarki Ármannsson skrifar 17. mars 2015 23:03 Benjamín Netanjahú greiddi atkvæði í morgun. Vísir/AFP
Mjög mjótt er á mununum í ísraelsku þingkosningunum sem fóru fram í dag. Útgönguspár benda til þess að Likud-flokkur Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra og Samband síonista, bandalag mið- og vinstriflokka, fái um 27 sæti á þinginu hvor um sig. Kjörklefar lokuðu um klukkan átta að kvöldi á íslenskum tíma og munu úrslitin sennilega ekki liggja fyrir fyrr en í fyrramálið, að því er fréttastofa BBC greinir frá. Þá mun Rueven Rivlin, forseti Ísraels, veita forystumanni annars flokksins umboð til að mynda ríkisstjórn. Miðað við útgönguspár getur hvorugur flokkurinn myndað meirihlutastjórn án stuðnings annarra flokka.Sjá einnig: Netanyahu gagnrýnir viðræður Bandaríkjanna við Íran Netanjahú sagði fyrr í kvöld að samkvæmt spám væri um „frábæran sigur“ Likud-flokksins að ræða, en fylgi hans hefur mælst talsvert minna en fylgi Sambands síonista að undanförnu. Jitsjak Hersog, formaður Sambands síonista, kallar fullyrðingar Netanjahú hinsvegar „ótímabærar“ og segist bíða lokaniðurstaðna kosninganna. Hinn 65 ára Netanyahu rak á síðasta ári tvo ráðherra úr ríkisstjórn sinni þar sem hann sakaði þá um að grafa undan stjórninni. Hann boðaði í kjölfarið til þingkosninga í þeirri von að geta myndað nýja ríkisstjórn. Netanyahu þvertók í gær fyrir að stofnað yrði sjálfstætt ríki Palestínumanna, fengi hann endurnýjað umboð í kosningunum.
Tengdar fréttir Þingkosningar í Ísrael: Búist við að það verði mjótt á munum Benjamin Netanyahu forsætisráðherra sækist eftir endurnýjuðu umboði. 17. mars 2015 11:44 Flokkalandslagið í Ísrael Ísraelska flokkalandslagið hefur breyst nokkuð á síðustu árum. 5. mars 2015 10:45 Netanyahu gagnrýnir viðræður Bandaríkjanna við Íran „Leiðtogar Bandaríkjanna hafa áhyggjur af öryggi ríkisins. Leiðtogar Ísrael hafa áhyggjur af því að ríkið lifi af.“ 2. mars 2015 16:44 Mest lesið „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent Hrafnagilshverfi stækkar ört Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Innlent Fleiri fréttir Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Sjá meira
Þingkosningar í Ísrael: Búist við að það verði mjótt á munum Benjamin Netanyahu forsætisráðherra sækist eftir endurnýjuðu umboði. 17. mars 2015 11:44
Flokkalandslagið í Ísrael Ísraelska flokkalandslagið hefur breyst nokkuð á síðustu árum. 5. mars 2015 10:45
Netanyahu gagnrýnir viðræður Bandaríkjanna við Íran „Leiðtogar Bandaríkjanna hafa áhyggjur af öryggi ríkisins. Leiðtogar Ísrael hafa áhyggjur af því að ríkið lifi af.“ 2. mars 2015 16:44