Sama stefnan áfram 24. janúar 2015 09:15 Salman konungur Arftakinn er 79 ára hálfbróðir hins látna.fréttablaðið/AP
Sádi-Arabía Salman bin Abdul-Aziz al Saud tók í gær við konungstign í Sádi-Arabíu eftir að hálfbróðir hans, Abdúllah konungur, lést níræður að aldri. Salman gaf strax út yfirlýsingu um að áfram yrði haldið á sömu braut og hingað til: „Við munum áfram fylgja þeirri réttu stefnu sem Sádi-Arabía hefur fylgt frá stofnun,“ sagði hann. Eitt af fyrstu verkum Salmans konungs var svo að taka ákvörðun um að arftaki hans yrði annar hálfbróðir þeirra, Muqrin, sem verður sjötugur á þessu ári. Muqrin er yngsti eftirlifandi sonur ættföðurins Ibn Sauds, sem var fyrsti konungur Sádi-Arabíu og ríkti frá árinu 1932 til 1953. Salman er sjálfur nýorðinn 79 ára, og þar með níu árum eldri en Abdúllah var þegar hann tók við völdum fyrir tuttugu árum. Alls eignaðist Ibn Saud 45 syni með 22 eiginkonum, en 36 þessara sona komust til fullorðinsára. Ibn Saud eignaðist auk þess fjölmargar dætur.Í bandalagi með strangtrúðum múslimum Saud-fjöskyldan hefur ráðið ríkjum í Sádi-Arabíu frá árinu 1932, og haldið þessum völdum ekki síst í krafti olíuauðs fjölskyldunnar, en olía fannst í Sádi-Arabíu árið 1938. Hin stoðin undir veldi Saud-fjölskyldunnar hefur verið bandalag hennar við strangtrúaða múslima, sem hafa allra náðarsamlegast látið það eiga sig að gera uppreisn gegn henni þótt ekki séu þeir sagðir beinlínis sáttir við lifnaðarhætti hennar. Hinir strangtrúuðu hafa verið til friðs vegna örlætis Saud-fjölskyldunnar gagnvart þeim, en olíuauðurinn hefur óspart verið notaður til að styrkja trúarstarfsemi hinna heittrúðu, bæði í Sádi-Arabíu sjálfri og utan hennar.Löggjöfin fyrirmynd al-Kaída og Íslamska ríkið. Hugmyndafræði hinna heittrúuðu Sádi-Araba hefur ráðið ríkjum meðal annars í strangri refsilöggjöf landsins, sem jafnan vekur furðu á Vesturlöndum þegar fréttir berast af opinberum aftökum og limlestingum. Þessi sama hugmyndafræði hefur einnig orðið ein helsta fyrirmynd herskárra íslamistahreyfinga á borð við talibana, al-Kaída og Íslamska ríkið. Fjölmargir þjóðhöfðingjar og stjórnmálaleiðtogar hafa lýst yfir samúð sinni og söknuði vegna fráfalls Abdúllah, þar á meðal bandarískir ráðamenn á borð við Barack Obama forseta, John Kerry utanríkisráðherra, Chuck Hagel varnarmálaráðherra og George W. Bush, fyrrverandi forseta.
Mest lesið „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Erlent „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Erlent Gestafjöldi verður ekki takmarkaður við fimm þúsund Innlent Ráðist á ungan dreng með piparúða Innlent Bein útsending: Heimilisleysi á Íslandi Innlent Gaut ellefu íslenskum fjárhundum sem er heimsmet Innlent Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Innlent Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ Erlent Litir víkja fyrir nútímanum víðast hvar Innlent Fleiri fréttir Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf „Ég vil bara að þetta sé sanngjarnt. Að komið sé eins fram við alla“ Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Fluttu kjarnakljúf með flugvél í fyrsta sinn „Einræðisherrann“ aðstoðaði við handtöku eftirlýsta ólympíufarans Ætla einnig að draga úr vopnakaupum frá Bandaríkjunum Sjá meira