Ekki tapa ykkur í gleðinni 5. janúar 2015 13:30 Jón Arnar Magnússon hvetur fólk til að fara varlega af stað og hlusta á líkamann Vísir/GVA
Janúarmánuður er venjulega vinsælasti mánuðurinn hjá líkamsræktarstöðvum og setja margir beint í fimmta gír og ætla að ná árangri strax. Ef ekki er farið með gát og hlustað á líkamann getur það valdið slæmum meiðslum. Jón Arnar Magnússon, kírópraktor og fyrrverandi tugþrautarkappi, hvetur fólk til þess að fara varlega, annars geti það haft slæmar afleiðingar. „Fólk þarf að gæta að því að fara ekki fram úr sér. Það ætla svo margir að taka þetta með trompi og dýfu og fá árangurinn helst í gær. Það er kannski það hættulega við þetta,“ segir Jón, en sem kírópraktor hefur hann séð marga fara illa út úr því að æfa of mikið eða vitlaust. „Það má ekki tapa sér alveg í gleðinni heldur er nauðsynlegt að hlusta á líkamann. Ekki horfa á manninn við hliðina sem tekur miklu þyngra og hjóla í það,“ segir hann. Undanfarið hafa æfingar fyrir rassinn verið vinsælar, þá sérstaklega hjá stelpunum. „Hann er svolítið tískufyrirbrigði þessi rass núna, snýst allt um hann. Það er ekki gott að fókusera alveg á einn líkamshluta, ekki frekar en þegar strákar lyfta bara fyrir efri hluta líkamans. Mikilvægt er að æfa líkamann jafnt,“ segir Jón og hvetur fólk til að æfa skynsamlega og fara varlega. „Það sést kannski enginn árangur fyrstu sex vikurnar, en ef þú heldur þér við efnið þá gerist þetta. Engar skyndilausnir,“ bætir Jón við.
Mest lesið Vægar viðreynslur en engir pervertar Lífið Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Lífið Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Lífið Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið F1: The Movie frumsýnd í Egilshöll – sjáðu myndirnar Lífið samstarf Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Lífið Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sjá meira