Lífið

Ekki tapa ykkur í gleðinni

Jón Arnar Magnússon hvetur fólk til að fara varlega af stað og hlusta á líkamann
Jón Arnar Magnússon hvetur fólk til að fara varlega af stað og hlusta á líkamann Vísir/GVA
Janúarmánuður er venjulega vinsælasti mánuðurinn hjá líkamsræktarstöðvum og setja margir beint í fimmta gír og ætla að ná árangri strax. Ef ekki er farið með gát og hlustað á líkamann getur það valdið slæmum meiðslum.

Jón Arnar Magnússon, kírópraktor og fyrrverandi tugþrautarkappi, hvetur fólk til þess að fara varlega, annars geti það haft slæmar afleiðingar. „Fólk þarf að gæta að því að fara ekki fram úr sér. Það ætla svo margir að taka þetta með trompi og dýfu og fá árangurinn helst í gær. Það er kannski það hættulega við þetta,“ segir Jón, en sem kírópraktor hefur hann séð marga fara illa út úr því að æfa of mikið eða vitlaust.

„Það má ekki tapa sér alveg í gleðinni heldur er nauðsynlegt að hlusta á líkamann. Ekki horfa á manninn við hliðina sem tekur miklu þyngra og hjóla í það,“ segir hann.

Undanfarið hafa æfingar fyrir rassinn verið vinsælar, þá sérstaklega hjá stelpunum. „Hann er svolítið tískufyrirbrigði þessi rass núna, snýst allt um hann. Það er ekki gott að fókusera alveg á einn líkamshluta, ekki frekar en þegar strákar lyfta bara fyrir efri hluta líkamans. Mikilvægt er að æfa líkamann jafnt,“ segir Jón og hvetur fólk til að æfa skynsamlega og fara varlega.

„Það sést kannski enginn árangur fyrstu sex vikurnar, en ef þú heldur þér við efnið þá gerist þetta. Engar skyndilausnir,“ bætir Jón við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.