Lífið

Stjörnu- og norðurljósaganga á Hellisheiði

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Sævar Helgi, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness Segir myrkrið yndislegt, upplýst af stjörnum.
Sævar Helgi, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness Segir myrkrið yndislegt, upplýst af stjörnum. Vísir/Anton
„Ég ætla að taka með mér sjónauka og beina honum að því sem fyrir augu ber. Hvort sem það eru vetrarbrautir í milljóna ljósára fjarlægð eða staður þar sem nýjar stjörnur eru að verða til,“ segir Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, ritstjóri Stjörnufræðivefsins og starfsmaður Háskóla Íslands.

Sævar leiðir stjörnu- og norðurljósagöngu á Hellisheiði þann 16. janúar næstkomandi. „Við ætlum vonandi að skoða reikistjörnuna Júpíter sem verður áberandi þegar gangan verður.“

Stjörnuáhuginn kviknaði snemma hjá Sævari. „Hann virðist vera meðfæddur í mínu tilviki, ég man þegar ég var lítill að horfa upp til himins, svona sex ára gamall að ganga í skólann. Þá horfði ég meira til himins en á gangstéttina fyrir neðan mig,“ en hann segir stjörnuskoðun sínar ær og kýr.

„Ég kann mjög vel við veturinn, alveg hiklaust. Flestir gleðjast á vetrarsólstöðum þegar sól fer hækkandi á lofti en ég gleðst á sumarsólstöðum þegar stjörnurnar birtast aftur. Myrkrið er yndislegt, sérstaklega þegar stjörnurnar lýsa það aðeins upp.“

Ferðin er liður í samstarfi Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands og er brottför á einkabílum frá skrifstofu Ferðafélags Íslands klukkan átta þann 16. janúar. Þátttaka er ókeypis og eru allir velkomnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.