Stjörnu- og norðurljósaganga á Hellisheiði Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 5. janúar 2015 12:00 Sævar Helgi, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness Segir myrkrið yndislegt, upplýst af stjörnum. Vísir/Anton „
Ég ætla að taka með mér sjónauka og beina honum að því sem fyrir augu ber. Hvort sem það eru vetrarbrautir í milljóna ljósára fjarlægð eða staður þar sem nýjar stjörnur eru að verða til,“ segir Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, ritstjóri Stjörnufræðivefsins og starfsmaður Háskóla Íslands. Sævar leiðir stjörnu- og norðurljósagöngu á Hellisheiði þann 16. janúar næstkomandi. „Við ætlum vonandi að skoða reikistjörnuna Júpíter sem verður áberandi þegar gangan verður.“ Stjörnuáhuginn kviknaði snemma hjá Sævari. „Hann virðist vera meðfæddur í mínu tilviki, ég man þegar ég var lítill að horfa upp til himins, svona sex ára gamall að ganga í skólann. Þá horfði ég meira til himins en á gangstéttina fyrir neðan mig,“ en hann segir stjörnuskoðun sínar ær og kýr. „Ég kann mjög vel við veturinn, alveg hiklaust. Flestir gleðjast á vetrarsólstöðum þegar sól fer hækkandi á lofti en ég gleðst á sumarsólstöðum þegar stjörnurnar birtast aftur. Myrkrið er yndislegt, sérstaklega þegar stjörnurnar lýsa það aðeins upp.“ Ferðin er liður í samstarfi Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands og er brottför á einkabílum frá skrifstofu Ferðafélags Íslands klukkan átta þann 16. janúar. Þátttaka er ókeypis og eru allir velkomnir.
Mest lesið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Laufey á landinu Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið Fleiri fréttir Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Sjá meira