Tugþúsundir mótmæla fyrsta hreina fjárlagafrumvarpi Íhaldsflokksins Heimir Már Pétursson skrifar 8. júlí 2015 19:00 Russell Brand mótmælti frumvarpinu í dag. vísir/epa
Tugþúsundir mótmæltu fyrsta hreinræktaða fjárlagafrumvarpi Íhaldsflokksins í nítján ár í miðborg Lundúna í dag. Frumvarpið felur í sér mikinn niðurskurð í velferðarmálum og skattalækkanir á þá hæst launuðu. Íhaldsflokkurinn hefur ekki einn og sér lagt fram fjárlagafrumvarp frá árinu 1996 eða í 19 ár. En á síðasta kjörtímabili segjast Frjálslindir demókratar hafa komið í veg fyrir mikinn niðurskurð í velferðarmálum í samsteypustjórn með Íhaldsflokknum. George Osborne fjármálaráðherra lofaði því beinlínis í dag að skera niður velferðakerfið. „Þetta er fjárlagafrumvarp hins vinnandi fólks. Frumvarp sem leggur grunn að áætlun til næstu fimm ára um að færa okkur frá lágum launum, háum sköttum, og víðtækara velferðarkerfi í átt til þess þjóðfæelags sem við hyggjumst skapa. Þjóðfélags hærri launa, minna velferðarkerfis og lægri skatta,“ sagði Osborne þegar hann mælti fyrir frumvarpinu á breska þinginu í dag. Heildarniðurskurður til velferðarmála verður 2.460 milljarðar íslenskra króna. Til að mynda verða barnabætur og húsnæðisbætur lækkaðar verulega og sjálfvirkar húsnæðisbætur til fólks á aldrinum 18 til 21 árs verða lagðar af. Þá er gerir frumvarpið ráð fyrir öðrum eins niðurskurði hjá ráðuneytum og opinberum stofnunum. Um 80 þúsund manns mótmæltu frumvarpinu í miðborg Lundúna í dag. Þeirra á meðal leikarinn Russell Brand. „Við búum við menningu þar sem verstu hliðar hins mannlega eðlis fá framgang. Ég held að þetta hafi ekki alltaf verið svona. Ég man eftir að hafa alist upp við sterka verkalýðshreyfingu þar sem ríkti sterk réttlætiskennd og félagsleg aðstoð,“ sagði Brand meðal annars. Vegna uppbyggingar breska kosningakerfisins fékk Íhaldsflokkurinn meirihluta á breska þinginu þótt 64 prósent kjósenda hafi greitt öðrum flokkum atkvæði sitt í nýliðnum kosningum. Mótmælendur fullyrða að stjórnvöld séu að beita hina efnaminni hörku til að hygla fjármálastofnunum og hinum ríku. „Ég er einfaldlega þeirrar skoðunar að hinir fátæku eigi ekki að þjást fyrir mistök þeirra ríku. Þessar aðgerðir hafa áhrif á viðkvæmustu hópa samfélagsins, fatlaða og þá sem þjást af geðsjúkdómum. Fólk sem einfaldlega hefur verið óheppið í lífinu og jafnvel ekki fengið góða meðgjöf í æsku. Þetta fólk er að þjást fyrir mistök hinna fáu á toppi samfélagsins,“ sagði Aaron Davis einn mótmælenda. Íhaldsflokkurinn leggur mikla áherslu á að ná afgangi á fjárlögum og minnka skuldir ríkissjóðs og þá er pólitískt hentugt að nota Grikkland sem dæmi. „Í þessum töluðu orðum þurfið þið bara að horfa til kreppunnar í Grikklandi til að gera ykkur grein fyrir að ef ríki stjórnar ekki lántökum sínum munu lánin taka yfir stjórn ríkisins,“ sagði George Osborne á breska þinginu í dag.
Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Innlent Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Innlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Innlent Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Innlent „Sá spyr sem ekki veit“ Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Fleiri fréttir Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Sjá meira