Fyrirsæta krefst milljóna í skaðabætur vegna skíðaslyss á Íslandi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 8. júlí 2015 21:18 Þýska fyrirsætan Angelika Allmann mynd/facbook-síða Allmann
Þýska fyrirsætan Angelika Allmann hefur höfðað skaðabótamál á hendur útgefandanum Burda vegna skíðaslyss sem hún lenti í hér á landi í apríl í fyrra. Allmann fer fram á 75.000 evrur í skaðabætur frá Burda, eða sem samsvarar rúmum 11 milljónum króna. Málið er höfðað fyrir dómstóli í Hamborg í Þýskalandi. Slysið átti sér stað í Ólafsfjarðarmúla en fyrirsætan var í myndatöku fyrir tímaritið Fit for Fun. Allmann, sem er reynd skíðakona, rann til í brekkunni og slasaðist mikið. Hún braut nokkur bein, reif vöðva og sleit taug. Hún þurfti að fara í 10 aðgerðir og dvaldi í hálft ár á spítala í kjölfar slyssins, að því er fram kemur í frétt Telegraph um málið.Fyrirsætan þurfti að fara í 10 aðgerðir vegna slyssins.mynd/facebook-síða allmannAllmann segist enn finna mikið til í líkamanum og þá er ekki víst að taugin sem slitnaði í hægra hné hennar muni einhvern tímann gróa að fullu. Hún segir útgefandann að hluta til ábyrgan fyrir slysinu en talsmaður Burda segir fyrirtækið hafa boðið henni 30.000 evrur í bætur og hlutastarf á ritstjórn tímaritsins Fit for Fun sem fyrirsætan hafnaði. Í yfirlýsingu sinni saka Allmann og lögfræðingur hennar útgefandann um að hafa staðið illa að skipulagningu myndatökunnar. Samkvæmt þeim fór myndatakan fram án fjallaleiðsögumanns sem var kunnugur staðháttum auk þess sem teymið hafi fært sig frá öruggum stað, sem leiðsögumaður hafði mælt með, á annað svæði í um 300 metra fjarlægð.
Tengdar fréttir Björgunarsveitir kallaðar út vegna slasaðrar skíðakonu Konan á leið á sjúkrahús á Akureyri með þyrlu frá Ólafsfjarðarmúla. 3. apríl 2014 16:41 Skíðakona á gjörgæslu eftir fall í Ólafsfjarðarmúla Erlend skíðakona, sem slasaðist alvarlega þegar hún féll í Ólafsfjarðarmúla síðdegis í gær, liggur nú á gjörgæsludeild Landsspítalans í Reykjavík eftir aðgerð sem stóð fram eftir kvöldi í gær. 4. apríl 2014 08:49 Skíðakonan komin úr öndunarvél Konan er alvarlega slösuð en hlaut hún nokkur beinbrot og þar á meðal slæman áverka á hægri fæti. Var hún að skíða niður Múlann við erfiðar aðstæður þegar hún féll. Hún var þá stödd ofan við gamla Ólafsfjarðarveg, um 300 metra frá gagnamunnanum Ólafsfjarðarmegin. 4. apríl 2014 22:29 Mest lesið Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Fleiri fréttir Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Sjá meira
Björgunarsveitir kallaðar út vegna slasaðrar skíðakonu Konan á leið á sjúkrahús á Akureyri með þyrlu frá Ólafsfjarðarmúla. 3. apríl 2014 16:41
Skíðakona á gjörgæslu eftir fall í Ólafsfjarðarmúla Erlend skíðakona, sem slasaðist alvarlega þegar hún féll í Ólafsfjarðarmúla síðdegis í gær, liggur nú á gjörgæsludeild Landsspítalans í Reykjavík eftir aðgerð sem stóð fram eftir kvöldi í gær. 4. apríl 2014 08:49
Skíðakonan komin úr öndunarvél Konan er alvarlega slösuð en hlaut hún nokkur beinbrot og þar á meðal slæman áverka á hægri fæti. Var hún að skíða niður Múlann við erfiðar aðstæður þegar hún féll. Hún var þá stödd ofan við gamla Ólafsfjarðarveg, um 300 metra frá gagnamunnanum Ólafsfjarðarmegin. 4. apríl 2014 22:29