Festi 100 helíumblöðrur við garðstól og tókst á loft Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. júlí 2015 12:58 Mynd/Twitter
Kanadískur maður gæti átt yfir höfði sér fangelsisvist eftir að hafa fest ríflega 100 helíumblöðrur við garðstól og flogið yfir borgina Calgary í Kanada. Hinn 26 ára gamli Daníel Bora var handtekinn á sunnudag eftir að hafa „stokkið úr stólnum og opnað fallhlíf sem hann hafði á bakinu,“ ef marka má yfirlýsingu frá þarlendum löggæsluyfirvöldum. Að sögn kanadískra miðla réðst ofurhuginn í svaðilförina til að kynna nýtt hreinsiefni sem fyrirtæki hans var að setja á markað en talið er að hann hafi eitt ríflega 12 þúsund dölum, um 1.2 milljónum króna, í kaup á helíumblöðrunum. Í samtali við the Toronto Star segist Bora hafa ætlað að stökkva úr stólnum yfir veðreiðabraut bæjarins en tugþúsundir fylgdust þar með kappreiðum um helgina. „Ég flaug upp í tiltekna hæð þar sem vindhraðinn var rosalegur. Ég hringsnérist í stólnum og frostið var rosalegt,“ sagði Bora. „Ég sá hvernig veðreiðabrautin og draumar mínir flugu í burtu.“ Bora meiddist við lendingu og lögreglan leitar nú að stólnum sem enn er ófundinn. Lögreglan býst við því að stóllinn komi í leitirnar þegar síðustu blöðrurnar springa. „Við höfum ekki fengið neinar tilkynningar um að nokkur hafi fundið stólinn eða slasast af hans völdum,“ sagði lögreglustjórinn Kyle Grant í samtali við CTV.
Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Innlent Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Innlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Innlent Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent „Sá spyr sem ekki veit“ Innlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Fleiri fréttir Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Sjá meira