Eggert vonast til að komast aftur í landsliðið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. júlí 2015 15:23 Eggert í leik með Vestsjælland. vísir/getty
Eggert Gunnþór Jónsson vonast til að góð frammistaða með Fleetwood Town muni hjálpa honum að endurheimta sæti sitt í íslenska landsliðinu. „Íslenska landsliðið er að gera mjög góða hluti þessi misserin. Því miður hef ég ekki verið í landsliðshópnum að undanförnu vegna meiðsla,“ sagði Eggert í viðtali á heimasíðu Fleetwood en hann gerði tveggja ára samning við enska C-deildarliðið í dag. „Það eru spennandi tímar framundan og Ísland er líklega á leið á EM á næsta ári, svo vonandi kemst ég aftur í landsliðið og get tekið þátt í þessu spennandi verkefni,“ sagði Eggert ennfremur en hann lék síðast með íslenska landsliðinu gegn því svissneska á Laugardalsvelli í október 2012. Eggert þekkir vel til fótboltans á Bretlandi en hann lék um sjö ára skeið með Hearts í Skotlandi og svo um skamma hríð með Wolves og Charlton á Englandi. Hann segist ánægður að vera kominn aftur í enska boltann og segir að hann hafi margt að sanna. „Ég er mjög ánægður að vera kominn hingað og hlakka til að taka þátt í uppbyggingunni hjá félaginu og hjálpa því að komast enn lengra,“ sagði Eggert en hjá Fleetwood hittir hann fyrir landa sinn, Grétar Rafn Steinsson, sem er yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu. „Ég var í sjö ár hjá Hearts sem er langur tími. Edinborg er líka fín borg svo ég naut mín vel þar. Ég fór svo til Wolves og þar gengu hlutirnir ekki upp sem var svekkjandi. „En ég get ekki hugsað lengur um það. Ég er bara ánægður að vera kominn aftur og vil nýta tækifærið til að hjálpa Fleetwood að ná sem lengst. „Þú þarft alltaf að sanna þig þegar þú ferð til nýs félags. Þú þarft að kynnast leikmönnum og starfsliði og vil ég sýna hvers ég er megnugur.“ Eggert lék síðast með Vestsjælland í Danmörku en þar áður var hann á mála hjá Belenenses í Portúgal.
Enski boltinn Tengdar fréttir Grétar Rafn fær Eggert til Fleetwood Eggert Gunnþór Jónsson er á leið til Fleetwood Town sem leikur í C-deildinni á Englandi. 8. júlí 2015 12:41 Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Enski boltinn Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Enski boltinn Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira
Grétar Rafn fær Eggert til Fleetwood Eggert Gunnþór Jónsson er á leið til Fleetwood Town sem leikur í C-deildinni á Englandi. 8. júlí 2015 12:41