Tvö rauð spjöld og tvö víti þegar Svíar unnu Ítali Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júní 2015 17:52 Frá leik Svía og Ítala í kvöld. Vísir/AFP
Svíar unnu 2-1 sigur á Ítölum í kvöld þrátt fyrir að lenda bæði manni og marki undir í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni 21 ára landsliða í fótbolta sem hófst í gær í Tékklandi. Svíar tryggðu sér sigurinn með marki úr vítaspyrnu fjórum mínútum fyrir leikslok en þeir léku manni færri í 52 mínútur í þessum leik. Dómari leiksins, Anastasios Sidiropoulos frá Grikklandi, dæmdi tvö víti og gaf tvö rauð spjöld í þessum leik en alls fóru átta spjöld á loft. Svíar urðu fyrir áfalli á 28. mínútu leiksins þegar Alexander Milosevic, leikmaður Besiktas, fékk rautt spjald og dæmt á sig víti. Domenico Berardi, leikmaður Juventus, kom ítalska liðinu í 1-0 með því að skora úr vítaspyrnunni. John Guidetti, leikmaður Celtic, jafnaði metin á 56. mínútu eftir stoðsendingu frá Oscar Lewicki og tíu mínútum fyrir leikslok var síðan Ítalanum Stefano Sturaro, leikmanni Juventus, vikið af velli með beint rautt spjald. Kiese Thelin, leikmaður franska liðsins Bordeaux, skoraði síðan sigurmarkið á 86. mínútu, eða aðeins sex mínútum síðar, eftir að varamaðurinn Mikael Ishak fiskaði víti á markvörðinn Francesco Bardi. Svíar og Ítalir eru í riðli með Englandi og Portúgal en þau mætast seinna í kvöld. Norðurlandaþjóðirnar Danmörk og Svíþjóð hafa því unnið tvo fyrstu leikina á móti en Danir unnu 2-1 sigur á heimamönnum í Tékklandi í opnunarleik mótsins í gær. Í hinum leiki A-riðilsins gerðu Þjóðverjar og Serbar 1-1 jafntefli.
Fótbolti Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Gray hetja Tottenham Enski boltinn Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Fleiri fréttir Martínez skaut Inter á toppinn Jöfnuðu 128 ára gamalt met Mahrez tryggði Alsíringum sigur Gray hetja Tottenham Højlund með tvö og Napoli í annað sætið Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Gömlu Chelsea-mennirnir skutu Milan á toppinn Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Skoraði og fékk gult fyrir að benda Juventus stigi frá toppnum Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Mané tryggði Senegal stig Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Þjálfari Þóris sá rautt í tapi fyrir Fabregas Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Tap hjá Tómasi í grannaslagnum og toppbaráttan harðnar Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Enn tapa Albert og félagar Andri Lucas frá í mánuð Sjá meira