Gervigreindin mun ekki útrýma mannkyninu segir stjórnandi hjá Microsoft Birgir Olgeirsson skrifar 28. janúar 2015 00:01 Stjórnandi hjá Microsoft telur gervigreind ekki eiga eftir að útrýma mannkyninu heldur eigi hún eftir að bæta lífið til muna. Getty.
Margir hafa lýst yfir þungum áhyggjum vegna þróunar á gervigreind og telja mannkyninu stafa ógn af því. Þeirra á meðal eru stjarneðlisfræðingurinn Stephen Hawking og Elon Musk forstjóri Tesla. Stjórnandi rannsóknarsviðs bandaríska tölvurisans Microsoft er hins vegar ekki sammála þessu mati og segir að um fjórðungur af starfsemi rannsóknarsviðs Microsoft fari í þróun á virkni gervigreindar. „Það hafa verið uppi áhyggjur af því að við munum missa tökin á nokkrum tegundum af gervigreind. Í grundvallaratriðum tel ég það ekki eiga eftir að gerast,“ segir Eric Horvitz í myndbandi frá Microsoft þar sem hann deilir skoðunum sínum eftir að hafa hlotið AAAI Feigenbaum-verðlaunin fyrir framlag sitt til þróunar á gervigreind. „Ég tel okkur eiga eftir að beita fyrirbyggjandi aðferðum við þróun gervigreindar og það verði mikið gagn af af slíkum kerfum á öllum sviðum, allt frá vísindum, menntun, viðskiptum og daglegu lífi.“Gervigreindin forgangsmál tæknirisa Horvitz fer fyrir rúmlega eitt þúsund manna teymi af vísindamönnum og verkfræðingum innan Microsoft sem hefur meðal komið fram með Cortana, raddstýrðu aðstoðarforriti sem er að finna í Windows-símanum og verður brátt hægt að nota á tölvum. Hann telur að Cortana og sambærileg forrit hjá samkeppnisaðilum Microsoft muni örva þróun á gervigreind sem verður forgangsmál tæknirisanna. „Við höfum Cortana, Siri og Google Now sem berjast um fyrsta sætið og sú keppni á eftir að auka fjárfestingu á þessu sviði og rannsóknir“Gæta friðhelgi einkalífs Hann sagði að gæta verði sérstaklega upp á friðhelgi einkalífs þegar kemur að þróun gervigreindar því hún á eftir að geta safnað saman óheyrilegu magni af upplýsingum út frá hegðun mannfólksins. „Við höfum hins vegar verið að vinna að kerfum sem geta áttað sig á því hvaða upplýsingar þau eiga að nota til að geta veitt notendum bestu þjónustuna en á sama tíma minnkað hættuna á innrás í einkalíf notenda.“
Tengdar fréttir Segir gervigreind geta leitt til endaloka mannkyns Breski eðlisfræðingurinn Stephen Hawking segir mannkyni stafa hætta af tilraunum manna til að skapa hugsandi vélmenni. 2. desember 2014 13:54 Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Innlent Árni skólameistari heldur embættinu Innlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Innlent Fleiri fréttir Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer Sjá meira
Segir gervigreind geta leitt til endaloka mannkyns Breski eðlisfræðingurinn Stephen Hawking segir mannkyni stafa hætta af tilraunum manna til að skapa hugsandi vélmenni. 2. desember 2014 13:54