Sjöunda hákarlaárásin á þremur vikum Samúel Karl Ólason skrifar 2. júlí 2015 11:30 Maðurinn er sagður hafa veri á sundi einungis tíu metra frá ströndinni. Vísir/EPA
68 ára gamall maður varð fyrir hákarlaárás við strendur Norður-Karólínu í gær. Um er að ræða sjöundu árásina við strendur Norður-Karólínu á einungis þremur vikum. Vitni segja manninn hafa verið á sundi einungis tíu metra frá ströndinni þegar hann var bitinn og dreginn undir sjávaryfirborðið.Yfirlit yfir hákarlárásir á þessu ári.V'isir/GraphicNewsDýpt sjávar þar sem árásin átti sér stað er sögð vera rétt rúmur metri. Hann er einnig sagður hafa reynt að reka hákarlinn á brott, sem var rúmir tveir metrar að lengd, en Andrew Costello særðist á bringunni, báðum höndum, öðrum fætinum og mjöðminni. Hann var fluttur á sjúkrahús með sjúkraflugi og var ekki í lífshættu í gær. Einungis nokkrum klukkustundum eftir árásina var fólk aftur komið í sjóinn við Oracoke eyju. Í samtali við ABC News segir vísindamaðurinn George Burgess að ástandið við strendur Norður-Karólínu. Hann hefur, ásamt lögreglu, farið fram á að ströndum verði lokað um tíma. Miðað við fjölda árása undanfarnar þrjár vikur segir hann það nánast öruggt að einhver verði fyrir árás um næstu helgi. Þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna er á laugardaginn og ljóst að fjölmargir munu leggja land undir fót og heimsækja strendur Bandaríkjanna. Um síðustu helgi drógu tveir menn hákarl á land við strendur Norður-Karólínu. Þeir slepptu honum þó aftur út í sjó.
Mest lesið „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Erlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent Vaktin: Viðreisn velur oddvita Innlent Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fleiri fréttir Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Sjá meira