Ótrúleg saga Martunis: Lifði af flóðbylgjuna og fékk atvinnumannasamning Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. júlí 2015 23:30 Hér er Martunis sjö ára gamall, ári eftir að flóðbylgjan skall á heimili hans. Vísir/Getty
Knattspyrnufélagið Sporting frá Lissabon tilkynnti í dag að félagið hafi samið við sautján ára leikmann frá Indónesíu að nafni Martunis. Saga hans er harla óvenjuleg en þegar Martunis var sex ára gamall lifði hann af flóðbylgjuna á Indlandshafi sem varð meira en 230 þúsund manns að bana. Þar af voru rúmlega 130 þúsund í Indónesíu, flestir í Aceh-héraðinu í norðurhluta landsins.Með Luiz Felipe Scolari árið 2005, þáverandi landsliðsþjálfara Portúgal.Vísir/GettyMartunies, sem er sautján ára í dag, missti móður sína og tvær systur í óförunum en flóðbylgjan bar hann út á haf þar sem honum tókst þó að komast lífs af. Eftir 21 dag fannst hann á yfirgefinni strönd og komið skjól hjá fréttamanni Sky News. Saga hans vakti heimsathygli en ekki síst í Portúgal þar sem drengurinn var klæddur í landsliðstreyju Portúgal, af Rui Costa. Meðal þeirra sem heilluðust af drengnum var Cristiano Ronaldo sem veitti fjárstuðning svo að hægt væri að endurbyggja heimili Martunis þar sem hann svo ólst upp með eftirlifandi fjölskyldu sinni. Ronaldo og Martunis hafa hist við nokkur tilefni síðan þá en sá síðarnefndi fær nú tækifæri til að fylgja í fótspor Ronaldo sem tók sín fyrstu skref sem atvinnumaður hjá Sporting í Lissabon. Þar mun hann fyrst um sinn leika með U-19 ára liði félagsins.Martunis hitti Ronaldo aftur árið 2013.Vísir/Getty
Fótbolti Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Fleiri fréttir Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum Sjá meira