Innlent

Loðnan gaf um 27 milljarða

svavar hávarðsson skrifar
Skip Síldarvinnslunnar veiddu 51.000 tonn.
Skip Síldarvinnslunnar veiddu 51.000 tonn. mynd/kristínsvanhvít
Reikna má með að verðmæti loðnu sem veiddist á nýliðinni vertíð og var unnin hér nemi um 27 milljörðum króna. Alls var úthlutað 393 þúsund tonnum til íslenskra loðnuskipa á vertíðinni og náðust 353 þúsund tonn á land.

Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar í Neskaupstað þar sem vertíðinni er lýst sem góðri en óvenjulegri og erfiðri. Göngumynstur loðnunnar var óvenjulegt, hún þétti sig seint og illa og veðurfarið var með erfiðara móti.

Skip Síldarvinnslunnar veiddu rúm 51.000 tonn en fyrirtækið tók á móti 138.230 tonnum af loðnu á vertíðinni. Eru þetta viðbrigði frá síðustu vertíð þegar Síldarvinnslan tók á móti 45.000 tonnum.

Alls voru fryst 12.105 tonn af loðnu og loðnuhrognum fyrir ýmsa markaði á vegum Síldarvinnslunnar. Fiskimjölsverksmiðjur Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, á Seyðisfirði og Helguvík tóku samtals á móti 124.151 tonni af loðnu á vertíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×