Taílendingar banna staðgöngumæðrun fyrir útlendinga Atli Ísleifsson skrifar 20. febrúar 2015 10:41 Mál Gammy vakti mikla athygli á síðasta ári. Vísir/AFP
Taílenska þingið hefur staðfest lög sem banna erlendum ríkisborgurum að greiða taílenskum konum fyrir að ganga með barn þeirra. Lögin voru samþykkt í kjölfar mikillar umræðu sem blossaði upp í landinu í kjölfar tveggja mála á síðasta ári. Lögin banna starfsemi „umboðsmanna“ og hvers kyns auglýsingar fyrir konur sem eru reiðubúnar að ganga með barn annarra. Allir þeir sem gerast brotlegir við lögin eiga yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi. Staðgöngumæðrun í Taílandi var mikið til umræðu á síðasta ári eftir að drengur sem staðgöngumóðir gekk með fæddist með Down‘s heilkenni. Neitaði þá ástralskt par að taka við drengnum, sem fékk nafnið Gammy, sem taílensk staðgöngumóðir hafði eignast fyrir parið. Gammy varð þá eftir hjá staðgöngumóðurinni en parið tók tvíbura Gammy með sér aftur til Ástralíu. Enn meiri umræða skapaðist svo eftir að upp komst að japanskur maður væri faðir á annars tug barna sem mismunandi taílenskar staðgöngumæður höfðu gengið með. Staðgöngumæðrun í viðskiptaskyni var bönnuð af taílenskum yfirvöldum árið 1997, en þrátt fyrir það hefur mikill iðnaður blossað upp þar sem erlendir ríkisborgarar hafa leitað til Taílands í leit að konu til að ganga með barn sitt gegn greiðslu. Staðgöngumæðrun í landinu verður þó ekki alfarið bönnuð þar sem pör með að minnsta kosti einum taílenskum ríkisborgara verður heimilt að notast við staðgöngumóður þó að ekki megi greiða fyrir þjónustuna.
Tengdar fréttir Ástralíustjórn íhugar inngrip Áströlsk stjórnvöld íhuga nú að grípa inn í mál taílenskrar staðgöngumóður, sem tók að sér að eignast barn fyrir ástralskt par. 5. ágúst 2014 12:00 Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Fleiri fréttir Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Sjá meira
Ástralíustjórn íhugar inngrip Áströlsk stjórnvöld íhuga nú að grípa inn í mál taílenskrar staðgöngumóður, sem tók að sér að eignast barn fyrir ástralskt par. 5. ágúst 2014 12:00