Messi: Ekkert sársaukafullra en að tapa úrslitaleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. júlí 2015 14:00 Lionel Messi eftir úrslitaleikinn. Vísir/EPA
Lionel Messi er enn ekki búinn að vinna titil með argentínska landsliðinu og annað sumarið í röð þurfa hann og félagar hans í argentínska landsliðinu að sætta sig við silfur á stórmóti. Lionel Messi tjáði sig á fésbókinni um tapið í úrslitaleik Suður-Ameríkukeppninnar en Argentína tapaði í vítakeppni á móti heimamönnum í Síle í gullleiknum um helgina. „Ekkert er sársaukafullra en að tapa úrslitaleik. Ég vil samt ekki bíða lengur með að þakka ykkur öllum sem hafa stutt við bakið á okkur," skrifaði Lionel Messi. Lionel Messi vann þrennuna með Barcelona á síðustu leiktíð og var það í annað skiptið sem liðið nær því. Argentínska landsliðið hefur ekki unnið titil í 22 ár eða síðan liðið vann Suður-Amerkíkukeppnina árið 1993. Messi var nú að taka þátt í Suður-Ameríkukeppninni í þriðja sinn og fá sitt annað silfur. Argentínska liðið tapaði 3-0 fyrir Brasilíu í úrslitaleiknum fyrir átta árum og datt út í átta liða úrslitunum árið 2011. Lionel Messi afþakkaði verðlaunin sem besti leikmaður keppninnar en hann átti fína leiki sérstaklega í undanúrslitaleiknum þar sem að hann lagði upp fjögur mörk fyrir félaga sína í 6-1 sigur á Paragvæ. Hann var kosinn bestur eftir tapið á móti Þýskalandi í úrslitaleiknum á HM í Brasilíu 2014 og var ekki í skapi til að taka við einn einum verðlaununum eftir tap í úrslitaleik.
Fótbolti Mest lesið Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Fótbolti Fleiri fréttir Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Sjá meira