Vilja Þorstein Sæmundsson í Flatjörðungafélagið Jakob Bjarnar skrifar 3. september 2015 14:25 Pétur og Helgi Hrafn telja málflutning Þorsteins einkennast af vanþekkingu og hreinum og klárum rangfærslum. „
Ég legg til að þessi ágæti þingmaður sæki um aðild að Flatjörðungafélaginu,“ segir Pétur Þorsteinsson formaður Snarrótar.Viðtal Vísis við Þorstein Sæmundsson, þingmann Framsóknarflokksins, um stefnu í fíkniefnamálum hefur vakið verulega athygli. Þorsteinn telur vert að herða tökin, veita meiri fjármunum til lögreglu og tollgæslu með það fyrir augum að skrúfa fyrir framboðið. Tilefni þessarar umræðu eru svör innanríkisráðherra við fyrirspurn Helga Hrafns Gunnarssonar þingmanns Pírata við lögregluaðgerðum þar sem leitað var á gestum tónlistarhátíða og fíkniefni gerð upptæk. Helgi Hrafn, Pétur og Grímur Atlason lýstu í kjölfarið yfir mikilli skömm á þeim aðgerðum, en Þorsteinn telur þau „köpuryrði“ lýsa miklu ábyrgðarleysi. Ekki sé hægt að sitja hjá meðan ungmenni steypa sér í glötun og látast vegna fíkniefna.Lítill árangur af stefnu undanfarinna áratuga „Þrátt fyrir að öllum ráðum hafi verið beitt í áratugi hef ég enn ekki séð nokkurt löggæslulið í heiminum hæla sér af því að ná meira en 5-10 prósent þeirra efna sem smyglað er til landa þeirra. Það er einfaldlega sá skattur sem smyglarar greiða fyrir að koma 90-95 prósent varningsins á markað,“ segir Pétur og vísar til orða Þorsteins: „Nokkur ungmenni látast á hverju ári vegna neyzlu fíkniefna. Hvort ætli þeim þyki það fyndið eða sorglegt. Lögreglan reynir með aðgerðum sínum að stemma stigu við neyzlu ungmenna. Lögreglan þyrfti heldur meira fjármagn til starfa sinna en köpuryrði frá þessum.“Þorsteinn er staðfastlega þeirrar skoðunar að betra sé að herða tökin og veita meiri fjármunum til lögregluyfirvalda til að skrúfa fyrir framboðið.Pétur spyr: „Mér leikur forvitni á að vita hvaðan þingmaðurinn hefur þessar upplýsingar og bið hann að deila heimildum sínum hið snarasta. Sjálfur gekk ég eins og grenjandi ljón um stofnanir í vor til að reyna að berja upp staðreyndir um dauðsföll af völdum ólöglegra efna. Þær eru einfaldlega ekki til, tölfræði okkar á því sviði er algjörlega ónýt.“Það sem hljómar vel í eyrum aldraðra kjósenda Framsóknarflokksins Pétur nefnir sem dæmi síðustu samantekt Rannsóknarstofu HÍ í lyfja- og eiturefnafræði nær til ársins 2009. „Landlæknisembættið er múlbundið af fáránlegum reglum frá Persónuvernd sem bannar að haldið sé utanum eitrunardauðsföll. Hið rétta er að dauðsföll af völdum ólöglegra efna eru blessunarlega fátíð á Íslandi og gætu verið enn færri ef við bærum til þess gæfu að haga fíknivörnum okkar með skynsamlegri hætti en nú er gert.Pétur telur Þorstein Sæmundsson eiga heima í Flatjörðungafélaginu.Því miður bætir þingmaðurinn engu við sem orðið gæti til úrbóta, en segir það sem hann „heldur“ að hljóti að vera satt, og það sem hann telur að hljómi best í eyrum aldraðra kjósenda Framsóknarflokksins.“Ólögleg efni pennadropi í áfengishafið Pétur getur þess að endingu, „til gamans að Vínbúðin seldi 724.000 lítra af áfengi fyrir Verslunarmannahelgina í fyrra. Mér kemur auðvitað ekkert við hvað aðrir þjóra, en það lítilræði af ólöglegum efnum sem lögreglunni tókst að klóra upp er augljóslega pennadropi í áfengishafið.Hér er tengill á síðustu áreiðanlegu heimildir Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði, og svo getur hver maður spurt sig hvar hinn raunverulegi vandi liggur í þessum málaflokki. Eru ólöglegu efnin að drepa fólk eða lögleg lyf og áfengi? Önnur efni eru væntanlega afgas af bílum og annað sem sem ýmist nýtist til sjálfsvíga eða slysfara.“Þorsteinn fer með rangt málHelgi Hrafn furðar sig ekki síður á ummælum kollega síns á þingi og segir hann hreinlega fara með rangt mál. Hann vísar til orða Þorsteins: „Til að fara inná sakaskrá vegna fíkniefnaneyslu og eða vörslu þurfa menn að hafa dágóðan skammt í fórum sínum.“Helgi telur málflutning Þorsteins ekki standast neina skoðun. „Ég meina, ef hann vill ekki eltast við neytendur, þá ætti hann að styðja það að hætta að eltast við neytendur.“Þetta segir Helgi Hrafn kolrangt. „Menn fara á sakaskrá fyrir öll vímuefnabrot. Ég hefði haldið að hann væri meðvitaður um þetta? Annars er alltaf áhugavert að fólk sem styður þetta fyrirkomulag eða jafnvel vill herða þetta, gera alltaf lítið úr refsingunum. Samt finnst þeim mikilvægt að hafa refsingar og helst hafa þær tíðari. En samt afsaka þeir þær með því að þær séu svo fábrotnar.“Segir málflutning Þorsteins hriplekanHelgi Hrafn vitnar enn í téð viðtal við Þorstein: „Þurfum að gera það. Til þess að losna við það að eltast við krakka sem eru með litla neysluskammta, þá eigum við að koma í veg fyrir það með því að stöðva framboðið.“ Helgi segist ekki geta skilið svar innanríkisráðherra betur en svo að af öllum þessum málum hafi fundist „tveir“ sölumenn á „þremur“ hátíðum. „Ég meina, ef hann vill ekki eltast við neytendur, þá ætti hann að styðja það að hætta að eltast við neytendur. Ef hann vill eltast við sölumenn og dreifingaraðila, þá er um að gera að forgangsraða peningum og vinnu lögreglunnar í þá átt, frekar en að eyða öllu þessu púðri og eftirliti, friðhelgi og afskiptum af friðsömum borgurum, til þess að bösta skitna tvo dílera á þremur hátíðum.“
Tengdar fréttir Þingmaður vill stöðva framboð eiturlyfja því þá er eftirspurnin ekkert vandamál Þorsteinn Sæmundsson þingmaður sendir Helga Hrafni Gunnarssyni og öðrum tóninn vegna umræðunnar um lögleiðingu og aðgerðir lögreglu við að gera fíkniefni upptæk -- hann vill herða tökin. 3. september 2015 10:33 Veruleg fíkniefnaneysla á hátíðum ársins Flest fíkniefnabrot komu upp á Secret Solstice en þar fast þar á hæla kemur Þjóðhátíð í Eyjum og Sónar. 2. september 2015 14:41 Eltingarleikur lögreglu við neyslu ungmenna sagður fyndinn ef hann væri ekki svona sorglegur Viðbrögð margra við tíðindum af fíkniefnaaðgerðum lögreglu á tónlistarhátíðum ársins eru afar blendin -- og er lögreglan sögð á verulegum villigötum. 2. september 2015 15:49 Mest lesið Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Hljóp á sig Innlent Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Innlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira
Þingmaður vill stöðva framboð eiturlyfja því þá er eftirspurnin ekkert vandamál Þorsteinn Sæmundsson þingmaður sendir Helga Hrafni Gunnarssyni og öðrum tóninn vegna umræðunnar um lögleiðingu og aðgerðir lögreglu við að gera fíkniefni upptæk -- hann vill herða tökin. 3. september 2015 10:33
Veruleg fíkniefnaneysla á hátíðum ársins Flest fíkniefnabrot komu upp á Secret Solstice en þar fast þar á hæla kemur Þjóðhátíð í Eyjum og Sónar. 2. september 2015 14:41
Eltingarleikur lögreglu við neyslu ungmenna sagður fyndinn ef hann væri ekki svona sorglegur Viðbrögð margra við tíðindum af fíkniefnaaðgerðum lögreglu á tónlistarhátíðum ársins eru afar blendin -- og er lögreglan sögð á verulegum villigötum. 2. september 2015 15:49