Fótbolti

Verður Burak Yilmaz með gegn Íslandi í kvöld?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Umfjöllun tyrknesku blaðanna um leikinn í kvöld.
Umfjöllun tyrknesku blaðanna um leikinn í kvöld. Vísir/E. Stefán
Burak Yilmaz var ekki með Tyrklandi í 2-0 sigrinum á Tékklandi um helgina en Tyrkir hafa ekki gefið upp vonina um að kappinn verði með gegn Íslandi í kvöld.

Yilmaz, framherji hjá Galatasaray, meiddist aftan í læri í leik með liði sínu gegn Trabzonspor í tyrknesku deildinni. Þá varð strax ljóst að hann yrði í kapphlaupi við tímann um að ná leiknum gegn Íslandi, sem fer fram í Konya í kvöld.

Tyrkir náðu þó að vinna afar mikilvægan útisigur á Tékklandi á laugardaginn án hans. Yilmaz er þó markahæsti leikmaður Tyrkja í undankeppninni með fjögur mörk.

Burak Yilmaz í leik með Galatasaray.Vísir/Getty
Tyrkneskur blaðamaður sem Vísir ræddi við í gær sagði enn óvíst hvort að Yilmaz yrði með í hóp í dag en taldi það líklegt að hann yrði að minnsta kosti á meðal varamanna.

Liðsfélagi Yilmaz hjá Galatasaray, Umut Bulut, gæti fengið tækifærið í kvöld en Cenk Tosun, leikmaður Besiktas, sem á aðeins tvo landsleiki að baki, byrjaði gegn Tékklandi og gæti haldið sæti sínu í fremstu víglínu Tyrklands.

Miðjumennirnir Arda Turan, leikmaður Barcelona, og Hakan Calhanoglu, sem leikur með Leverkusen, eru meðal hættulegustu leikmanna Tyrklands og ljóst að þeir verða í stóru hlutverki í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×