Sara Björk og félagar náðu toppsætinu aftur í bili | Úrslit dagsins Kristinn Páll Teitsson skrifar 11. október 2015 14:45 Sara í leik með Rosengard gegn Wolfsburg. Vísir/getty
Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar í Rosengard skutust upp í toppsæti sænsku úrvalsdeildarinnar í bili með 5-0 sigri á AIK í næst síðustu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í dag. Rosengard er því í toppsætinu þessa stundina en Glódís Perla Viggósdóttir og félagar í Eskilstuna geta náð efsta sætinu aftur með sigri á Linköpings í dag. Verkefni dagsins hjá Rosengard var ekki erfitt en þær vissu að allt annað en tap gegn AIK sem er löngu fallið myndi ganga langt með að afhenda leikmönnum Eskilstuna United titilinn. Það var ekkert vanmat hjá leikmönnum Rosengard sem leiddu 3-0 í hálfleik og unnu að lokum öruggan fimm marka sigur en Sara Björk var tekin af velli á 59. mínútu leiksins eftir að hafa lagt upp eitt mark í leiknum. Íslendingaliðið Kristianstads fékk skell gegn Pitea á heimavelli Pitea en Margrét Lára Viðarsdóttir og Elísa Viðarsdóttir voru í byrjunarliði Kristianstads. Sif Atladóttir byrjaði á varamannabekk Kristianstads í leiknum en kom inná í stöðunni 3-0 og lék síðasta hálftímann í leiknum. Pitea komst yfir undir lok fyrri hálfleiks og bætti við tveimur mörkum á upphafsmínútum seinni hálfleiks og gerði út um leikinn. Þá lék Arna Sif Ásgrímsdóttir allan leikinn í 2-4 tapi Göteborg gegn Örebro á heimavelli í dag. Göteborg gat með sigri tryggt sér 5. sætið þegar ein umferð er eftir en þær mæta Eskilstuna í lokaumferðinni. Lokaleikur dagsins í sænsku úrvalsdeildinni hefst innan skamms en þar mætast Linköpings og Eskilstuna á heimavelli Linköpings. Úrslit dagsins: Pitea 4-0 Kristianstads Vittsjö 3-0 Umea AIK 0-5 Rosengard Göteborg 2-4 Örebro
Fótbolti Mest lesið Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Uppgjörið: Pólland - Ísland 23-31 | Önnur hindrun yfirstigin Handbolti Undrandi á skrýtinni stöðu: „Þetta er bara ekki að virka“ Handbolti Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Enski boltinn Alfreð tekur á sig sökina: Gagnrýndur óbeint af leikmanni Handbolti Stór mistök Alfreðs reyndust Þjóðverjum dýrkeypt Handbolti „Hef verið í handbolta í þúsund ár en hef aldrei séð neitt þessu líkt“ Handbolti Króatar Dags lentu í kröppum dansi í fyrsta leik á EM Handbolti Sögulegur færeyskur stórsigur á EM Handbolti Slógu met sem Ísland er fegið að eiga ekki lengur Handbolti Fleiri fréttir Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Í beinni: Real Sociedad - Barcelona | Án Orra reyna þeir að skáka Börsungum Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Karólína skoraði í sigri á Juventus Albert kom að marki í þriðja leiknum í röð Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Genoa ekki tapað í fjórum leikjum í röð Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Stefán Teitur sætti sig ekki við bekkjarsetu: „Það besta í stöðunni“ Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Salah klúðraði vítaspyrnu er Nígería tók þriðja sætið Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Ísaki fórnað í langþráðum sigri Kölnar Birta hetja Genoa í frumrauninni Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Mbappé á skotskónum í fyrsta sigrinum undir stjórn Arbeloa Draumabyrjun hjá Carrick KR fær tvo unga Ganverja „Stoltur að fá þetta tækifæri og tek því ekki sem sjálfsögðum hlut“ Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Hákon horfði upp á tap er PSG tók toppsætið Líklegra að Vinícius Jr. framlengi við Real Madrid eftir brottför Xabi Alonso Sjá meira