Búlgörsku meistararnir hóta að hætta í deildinni Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. desember 2015 16:00 Ludogorets stillir sér upp fyrir leik gegn Real Madrid í Meistaradeildinni í fyrra. vísir/afp
Búlgarska meistaraliðið Ludogorets hótar því að hætta í búlgörsku úrvalsdeildinni, en forráðamenn liðsins halda því fram að dómarar deildarinnar séu að hjálpa Levski Sofia í átt að meistaratitlinum. Levski var að tapa, 1-0, gegn Litex Lovech á heimavelli síðasta laugardag en leikurinn var blásinn af þegar leikmenn Litex gengu af velli eftir að dæmt var á þá annað víti og rautt spjald. Til stendur að Levski vinni leikinn, 3-0, sem þýðir að liðið verður jafnt Ludogorets á toppnum í búlgörsku úrvalsdeildinni. „Við hættum líklega í deildinni ef svona fordæmi sem hjálpa Levski halda áfram,“ segir Kiril Domuschiev, eigandi Ludogorets, en það er BBC sem greinir frá. Domuschiev tók yfir Ludogorets árið 2010 og liðið vann B-deildina sama ár. Liðið vann úrvalsdeildina á sínu fyrsta ári þar og er búið að vinna hana undanfarin fjögur ár. „Af hverju ættum við að eyða peningunum okkar þegar lið sem hafa ekki gæði til að vinna titilinn beita þessari aðferð,“ segir eigandinn. Stoycho Stoilov, yfirmaður knattspyrnumála hjá Ludogorets, var jafn ósáttur og eigandinn. „Það var gríðarlegur munur á ákvörðun dómarans. Ég hef aldrei séð svona í fótboltanum. Þetta er farsi og móðgun við stuðningsmenn Litex og áhugamenn um fótbolta,“ sagði hann.
Fótbolti Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real Fótbolti Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Leikmenn Arsenal völdu Rice sem fyrirliða Fótbolti Fleiri fréttir Messi lögsóttur fyrir að spila ekki vináttuleik Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Leikmenn Arsenal völdu Rice sem fyrirliða Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Átti Camavinga skilið spjald? „Ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu“ Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real „Ég get ekki breytt þessu“ Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Þú ert farinn að verða þybbinn“ „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Sjá meira