Skilur að fólk sé undrandi á því að fá bréf um að það sé með tvo heimilislækna Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 29. maí 2015 15:55 Verkefnastjóri hjá Sjúkratryggingum segir það þó af og frá að verið sé að ýta fólki yfir í einkarekstur; fólk fái val um hjá hvorum lækninum það vilji vera. vísir/stefán
Fjöldi fólks fær nú bréf frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þar sem því er tjáð að það sé skráð með tvo heimilislækna, annars vegar hjá heilsugæslunni og svo hjá sjálfstætt starfandi heimilislækni sem er með samning hjá Sjúkratryggingum Íslands. Margir kannast hins vegar ekki við að vera skráðir hjá tveimur heimilislæknum, til að mynda Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna. Hún sagði frá því á Facebook-síðu sinni í vikunni að hún fékk slíkt bréf en annan lækninn, þann sem er sjálfstætt starfandi, kannaðist hún ekkert við. Katrín þurfti engu að síður að láta vita hjá hvorum hún ætlaði að vera, annars yrðu hún og börnin hennar færð yfir til læknisins sem hún hafði aldrei heyrt um.Skrá yfir sjúklinga orðin mjög gömul Katrín Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Sjúkratryggingum Íslands, segir að skráin yfir sjúklinga sem séu með heimilislækni hjá Sjúkratryggingum sé orðin mjög gömul og því sé verið að leiðrétta hana núna þannig að fólk sé ekki skráð með tvo heimilislækna. „Fólk fer kannski inn á skrá upphaflega sem börn eða unglingar og man kannski ekkert eftir því að það hafi verið skráð hjá viðkomandi lækni. Síðan getur það gerst að læknirinn hættir vegna aldurs og nýr læknir tekur við og þá verður svona samfella til þess að sjúklingarnir missi ekki heimilislækni. Þá fara þeir yfir á þann lækni sem tekur við sjúklingahópnum.“ Katrín segir að fólk færist aldrei frá heilsugæslunni yfir til Sjúkratrygginga þegar læknir hættir vegna aldurs heldur sé bara um að ræða sjúklinga sem hafa verið skráðir hjá Sjúkratryggingum. Hins vegar sé algengt að fólk leiti frekar til heilsugæslunnar og skrái sig hjá lækni þar og leiti þá ekki til læknisins hjá Sjúkratryggingum. Hún kannast ekki við að um mistök sé að ræða í skráningum.Skrá aldrei fólk án þess að fyrir liggi undirritaður pappír „Við skráum fólk aldrei hjá okkur nema að við fáum undirritaðan pappír frá viðkomandi. Eins ef að fólk vill hætta þá fáum við það líka undirritað frá lækninum. Það er alltaf þannig. Þó er það auðvitað svo að ef að fólk var upphaflega skráð hjá einhverjum lækni sem er löngu hættur og viðkomandi færist þá yfir til læknisins sem tekur við, skráir sig kannski í millitíðinni sjálft hjá heilsugæslunni og hefur aldrei haft samband við lækninn hér, ég skil það þá alveg að fólk getur verið undrandi á þessu. Þannig getur það þó verið og er reyndar bara mjög líklegt,“ segir Katrín. Hún segist ekki þora að fara með hvers vegna fólk sem er skráð hjá tveimur heimilislæknum haldi skráningunni hjá sjálfstætt starfandi lækninum en ekki þeim sem er innan heilsugæslunnar. Katrín segir það þó af og frá að verið sé að ýta fólki frekar yfir í einkarekstur í heilbrigðisgeiranum; fólk fái val um hjá hvorum lækninum það vilji vera.
Tengdar fréttir Kannast ekki við heimilislækninn Fjöldi fólks fær nú bréf frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þar sem því er tjáð að það sé skráð með tvo heimilislækna, annars vegar hjá heilsugæslunni og svo hjá sjálfstætt starfandi heimilislækni. 28. maí 2015 15:21 Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Erlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Erlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Fleiri fréttir Án rennandi vatns í á annan sólarhring Vilja óháða sérfræðinefnd til að rannsaka alvarleg atvik í heilbrigðiskerfinu Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sjá meira
Kannast ekki við heimilislækninn Fjöldi fólks fær nú bréf frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þar sem því er tjáð að það sé skráð með tvo heimilislækna, annars vegar hjá heilsugæslunni og svo hjá sjálfstætt starfandi heimilislækni. 28. maí 2015 15:21