Leynigögn frá síðari heimsstyrjöldinni fundust falin á hóteli Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 10. febrúar 2015 09:26 Sum gögnin sem fundust eru merkt leyniþjónustu drottningarinnar.
Leynigögn með hernaðarskipunum vegna D-dagsins í síðari heimsstyrjöldinni fundust undir gólffjölum á hóteli í Suður-Englandi þegar endurbætur voru gerðar þar. Hálfur ruslapoki af gögnum fannst á hótelinu, sum merkt leyniþjónustu drottningarinnar. Hótelið, Balmer Lawn í Brockenhurst, var notað sem þjálfunarbúðir fyrir herinn í seinni heimsstyrjöldinni auk þess sem það var notað til að skipuleggja D-daginn. Talið er að gögnin sem fundust þar nú tengist kanadíska hernum sem dvaldi um skeið á hótelinu í aðdraganda D-dagsins. Á D-daginn, 6. júní 1944, réðust hersveitir bandamanna inn í Normandí í Frakklandi en Þjóðverjar höfðu hernumið landið. Innrásin er talin einn af lykilatburðum seinni heimsstyrjaldarinnar og orrustan sem þar var háð ein af þeim orrustum sem lögðu grunninn að sigri bandamanna í styrjöldinni.Uppfært klukkan 11.15: Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar var vitlaust farið með dagsetningu D-dagsins. Vísir þakkar ábendingar frá lesendum og hafa mistökin nú verið leiðrétt.
Tengdar fréttir Faldi muni úr tunglferðinni Geimfarinn Neil Armstrong hafði falið muni sem voru í Apollo 11 í skápnum sínum. 9. febrúar 2015 11:09 Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Fleiri fréttir Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Sjá meira
Faldi muni úr tunglferðinni Geimfarinn Neil Armstrong hafði falið muni sem voru í Apollo 11 í skápnum sínum. 9. febrúar 2015 11:09