Komu þróun mála yfir á friðsamlega braut Guðsteinn Bjarnason skrifar 11. desember 2015 07:00 Leiðtogar fjögurra samtaka í Túnis sem mynda kvartettinn tóku við verðlaununum í gær. Fréttablaðið/EPA
Túnis-kvartettinn tók við friðarverðlaunum Nóbels í gær við hátíðlega athöfn í Ósló. Kvartettinn fær verðlaunin fyrir framlag sitt til að koma á friði og lýðræði í landi sínu. Það var í Túnis sem arabíska vorið svonefnda hófst í árslok 2010 og breiddist síðan út til annarra arabalanda. Víðast hefur ólgan ekki skilað öðru en langvarandi átökum eða endurnýjaðri harðstjórn. Túnis er þó undantekningin, ekki síst vegna kvartettsins sem tókst að fá andstæðar fylkingar í landinu til að ræða og vinna saman. „Sumarið 2013 var Túnis á barmi borgarastyrjaldar,“ sagði Kaci Kullman Five, formaður norsku Nóbelsnefndarinnar, í ávarpi sínu gær. Það var þá sem kvartettinn kom til sögunnar: „Einarðleg inngrip kvartettsins hjálpuðu til við að stöðva ofbeldið, sem var að grafa um sig, og koma þróun mála yfir á friðsamlega braut,“ sagði Five. Að kvartettinum svonefnda, eða Þjóðarsamræðukvartett eins og hann nefnist formlega, standa fjögur félagasamtök í Túnis: Samtök verkalýðsins, samtök lögfræðinga, samtök atvinnurekenda og mannréttindasamtök. Leiðtogar þessara fjögurra samtaka tóku við verðlaununum í gær og þökkuðu heiðurinn. „Það að heimurinn skuli veita þjóðarsamræðunni í landinu okkar viðurkenningu er staðfesting á því að við deilum með alþjóðasamfélaginu grundvallargildum mannréttinda og höfnum andlegri og hugmyndafræðilegri einangrun í öllum myndum,“ segir í ávarpi kvartettsins, sem fulltrúarnir fjórir skiptust á að lesa. Þeir taka fram að heiðurinn sé ekki þeirra einna heldur allra pólitískra hópa í Túnis: „Þeim tókst að setja hagsmuni landsins og þjóðarinnar ofar þröngum sérhagsmunum.“
Mest lesið „Ég er skrímsli“ Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Fleiri fréttir Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Sjá meira